Sveitarfélögin Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnes munu leggja fram tillögu í bæjarráðum og bæjarstjórnum sveitarfélaganna í vikunni um frestun fasteignaskatta og fasteignagjalda á eigendur íbúða- og atvinnuhúsnæðis. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá bæjarstjórunum.

Tillagan gerir ráð fyrir að gjalddögum ársins verði fjölgað til að létta mánaðarlega greiðslubyrði íbúa og atvinnulífs. Eftirstöðvum ógjaldfallinna fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins, sbr. vatnsveitu, holræsis- og sorphirðugjalda, fyrir íbúða- og atvinnuhúsnæði verði dreift á mánuðina apríl/maí (eftir því sem við á í við í hverju sveitarfélagi) fram í desember. Þetta er gert til þess að létta undir með þeim aðilum sem nú þegar hafa fundið fyrir eða munu finna fyrir tekjufalli vegna þeirra efnahagsaðstæðna sem  nú ríkja.

Samkvæmt tillögunni geta eigendur atvinnuhúsnæðis sem hafa orðið fyrir verulegu tekjutapi sótt um frestun allt að þriggja gjalddaga fasteignaskatta og fasteignagjalda sem færast þá á fyrstu mánuði ársins 2021. Með verulegu tekjutapi er átt við að minnsta kosti 25% tekjufalli milli sömu mánaða á árunum 2019 og 2020.

Ármann Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar

Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar

Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarness