Þann 20. nóvember samþykkti fræðsluráð Hafnarfjarðarbæjar styttingu á viðveru leikskólabarna sem frá áramótum mun takmarkast við 8,5 klst. á dag.
Ég sendi erindi til sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs (MOL), færðsluráðs og bæjarstjórnar, en langar að vekja athygli bæjarbúa á þessu líka því það er grafalvarlega þjónustuskerðingu að setja íbúum bæjarins þessa takmörkun.
Á heimasíðu Hafnarfjarðar segir að þetta sé liður í að innleiða Barnasáttmálann og að þessi ákvörðun eigi að „stuðla að betri líðan barna“. Það er frábært að Barnasáttmálinn sé í hávegum hafður og réttindi barna færð efst á forgangslistann. En ég tel þessa ákvörðun skapa umhverfi sem veldur meiri streitu og óreiðu.
Í svari sviðsstjóra MOL segir að aðeins lítill hluti fjölskyldna kaupi og nýti sér þessar 30-60 auka mínútur sem um ræðir, en greiði öll fyrir þjónustuna og svigrúmið.
Stór hluti foreldra leikskólabarna starfar ekki í Hafnarfirði en skilar af sér 8 stunda vinnudegi (7:51 frá áramótum). Það gefur fólki 30-39 mínútur alls til að komast í og úr vinnu – sem reynist mörgum ómögulegt.
Með þessari ákvörðun er verið að setja fjölskyldur sem kaupa 9+ klst. fyrir dagvistun út í jaðarinn, með því að setja þeim takmörk sem ekki ganga upp og minnka sveigjanleika sem getur verið mörgum (eins og minni fjölskyldu) nauðsynlegur í daglegri rútínu.
Þetta getur skapað umhverfi þar sem börn eru á miklu róti með því að fara í pössun eftir skóla frekar en að fá að vera í sínu venjulega skólaumhverfi með tilheyrandi öryggi og venju. Þetta getur líka skapað aðstæður þar sem foreldrar vinna frekar heima eftir að skóla lýkur eða sökum skorts á sveigjanleika þurfi að skipta um starf.
Hugmyndin er falleg, en umhverfið og samfélagið okkar veitir okkur öllum ekki tækifæri til þess.
Við eigum að skapa samfélag jöfnuðar, ekki takmarkana.
Með virðingu og vinsemd,
Hildur Pálsdóttir
Foreldri leikskólabarns í Hafnarfirði