Alþjóðadagur barna var í gær og samhliða honum fagnaði Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna 30 ára afmæli. Fræðsluráð Hafnarfjarðar hélt upp á daginn með því að samþykkja styttingu á viðveru leikskólabarna og þannig mun hámarksvistunartími verða 8,5 tímar á dag frá og með næstu áramótum. Leikskólar í Hafnarfirði eru samhliða hvattir til að skoða styttingu á opnun í takt við skráningar barna.
Í skýrslu starfshóps Hafnarfjarðarbæjar um bættar starfsaðstæður í leikskólum var bent á langan vistunartíma íslenskra barna og færð góð rök út frá rannsóknum á líðan og þroska barna. Því telur fræðsluráð Hafnarfjarðar það framfaraskref og stuðla að bættri líðan barna að dvöl þeirra á leikskóla fari ekki yfir fyrrgreindan tíma. Þá er jafnframt vísað í ráðlagðan aldurstengdan vistunartíma sem leikskólar kynna foreldrum við skráningu og er sýnilegur á hverri deild leikskóla Hafnarfjarðar.
Í sumum leikskólum bæjarins er ekki þörf á að opið sé lengur en til kl. 16:30 á daginn. Aðrir leikskólar sem eru með opið til kl. 17 eru hvattir til að að skoða styttingu á opnun í takt við skráningar barnanna. Allir leikskólar Hafnarfjarðar munu áfram vera opnir milli 7:30 og 17 og laga sig að þörfum barna og fjölskyldna sem rúmast innan þessara 8,5 klukkustunda hámarks vistunartíma.
Hafnarfjörður vinnur að því að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og leggur því áherslu á að hagsmunir barna, eins og lengd vistunartíma þeirra í leikskólum, séu hafðir að leiðarljósi við ákvarðanatöku þegar við á. Í gær, 20. nóvember, á 30 ára afmæli Barnasáttmálans þótti vel við hæfi og í anda sáttmálans að Hafnarfjörður verði leiðandi í því að stytta viðveru ungra barna í leikskólum bæjarins.
Með þessari samþykkt er verið að stíga stórt skref fyrir komandi kynslóð og stuðla þannig að bættum lífsgæðum barna. Mennta- og lýðheilsusviði Hafnarfjarðarbæjar hefur verið falið að kynna og útfæra breytinguna.
Mynd aðsend.