Í ljósi þess að starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar hefur undanfarið lagst á eitt í því mikilvæga verkefni að halda úti þjónustu sveitarfélagsins á tímum viðbúnarðarstiga almannavarna, var ákveðið að gleðja allt starfsfólk sveitarfélagsins með gjafabréfi á góða skemmtun í hjarta Hafnarfjarðar þegar yfir lýkur.
Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að mannauðurinn hafi fetað saman óþekktan veg nýrra áskorana sem kallað hafi á endurskoðun og uppstokkun á veittri þjónustu og sveigjanleika í starfi starfsfólks sem mætt hefur verkefnum af miklum dugnaði og æðruleysi.
„Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með því hvernig starfsfólk sveitarfélagsins fyrirvaralaust brugðist við breyttum aðstæðum og umhverfi sem var okkur öllum óþekkt. Það er þessum hópi að þakka að við höfum náð að halda úti, með óbreyttu eða breyttu formi, allri þeirri þjónustu sem skilgreind er sem samfélagslega mikilvæg“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Starfsfólk fær nú fyrir páska að gjöf frá bænum sínum opið gjafabréf í Bæjarbíó að upphæð 5.000.- kr á tónleika eða skemmtun að eigin vali þegar samkomubanni hefur verið aflétt. „Með þessari gjöf viljum við slá tvær flugur í einu höggi. Gleðja starfsfólkið okkar sem á það sannarlega skilið og leggja okkar af mörkum til að koma menningar- og bæjarlífinu sem við erum svo stolt af, aftur í gang eftir þetta krefjandi verkefni. Það verða líka án efa margir starfsmenn sem kjósa að fara út að borða áður en þeir nýta gjafabréfið og jafnvel kaupa sér eitthvað fallegt til að vera í. Við getum öll farið að hlakka til að skemmta okkur saman og njóta alls þess sem bærinn okkar hefur upp á að bjóða í verslun, þjónustu og afþreyingu,“ segir Rósa.
Það hafa allir lagst á eitt og það er þakkarvert
Sveitarfélagið veitir samfélagslega mikilvæga þjónustu sem má aldrei rofna og hefur mikið mætt á starfsfólki t.d. fjölskyldu- og barnamálasviðs frá því að Covid19 faraldurinn gerði fyrst vart við sig við m.a. endurskipulagningu á félagsstarfi og vinnuúrræðum fyrir fatlað fólk, félagsstarfi eldra borgara til að tryggja virkni þeirra og félagsleg tengsl, heimaþjónustu og starfi barnaverndar við úrlausn mála við nýjar og breyttar aðstæður sem er til þess fallnar að auka kvíða og áhyggjur hjá ákveðnum hópum. Starfsfólk mennta- og lýðheilsusviðs og þar með talið starfsfólk leik- og grunnskóla hefur svo lagst á eitt við að skipuleggja skert skólastarf í takt við tilmæli yfirvalda.
Annarri þjónustu; m.a. menningarstofnana og sundlauga, var haldið úti með breyttu formi þar til samkomubann var hert og koma þurfti til lokunar. Starfsfólki þessara starfsstöðva hefur verið falin önnur verkefni auk þess sem ákveðinn hópur er á bakvakt komi til veikinda annars staðar í kerfinu. „Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar hefur í gegnum árin ítrekað sýnt hversu öflugt það er í ólíkum og margvíslegum störfum sínum sem kalla á virka samvinnu. Og ekki síður hversu samstilltur og sterkur hópurinn getur verið þegar á móti blæs. Það hefur sýnt sig nú síðustu daga og fyrir það er ég afar þakklát“ segir Rósa að lokum.
Mynd 1: Starfstöðvar Hafnarfjarðarbæjar eru rúmlega 70 talsins. Hér afhendir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Telmu Ýri Friðriksdóttur leikskólastjóra á Bjarkalundi gjafabréf á góða skemmtun fyrir starfsfólk leikskólans.