Sorgarmiðstöð og Hafnarfjarðarbær hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára sem felur meðal annars í sér að Sorgarmiðstöðin fær aðstöðu í nýju lífsgæðasetri í St. Jó gegn því að bjóða upp á fræðslu á sviði sorgarúrvinnslu fyrir grunnskóla og stofnanir bæjarins á sama tíma og þjónustan verður aðgengileg fyrir íbúa og aðra á besta stað í sveitarfélaginu.
Öll starfsemi í Lífsgæðasetri St. Jó á að stuðla að bættum lífsgæðum og fylgja þannig þeim anda, hlýju og umhyggju sem húsið hefur alla tíð borið með sér, allt frá því er St. Jósefssystur hófu þar starfsemi fyrir tæpum 100 árum. Að styðja og fræða þá sem eiga um sárt að binda vegna ástvinarmissis fellur vel að þessum gildum.
Sorgarmiðstöð, sem er nýtt samræmt úrræði fyrir fólk sem misst hefur aðstandanda, var stofnað af félögunum Nýrri dögun, Birtu, Ljónshjarta og Gleym mér ei með það fyrir augum að veita heildstætt úrræði á einum stað og þannig enn betri þjónustu til syrgjandi fólks á Íslandi. Sameiginlegur vinnufundur félaganna leiddi í ljós að samræma þyrfti úrræði fyrir syrgjendur og tryggja því góðan farveg og kynningu.
„Það skiptir miklu máli fyrir félögin sem standa að Sorgarmiðstöð að fá samastað fyrir sína starfsemi og við fögnum áhuga Hafnarfjarðarbæjar á því að vilja efla stuðning við syrgjendur því það er mikilvægt lýðheilsumál“ segir K. Hulda Guðmundsdóttir stjórnarformaður Sorgarmiðstöðvarinnar.
Miðstöðin mun einblína á það að hjálpa fólki sem misst hefur ástvini við að vinna úr sorginni en við fráfall reynist oft erfitt að finna hjálparleiðir. Því sé mikilvægt að veita syrgjandi fólki aðhald og sýnilegra úrræði.
“Við erum stolt af því og ánægð með að fá að taka þátt í stofnun Sorgarmiðstöðvarinnar og fara í samstarf með þeim fagaðilum sem þar munu starfa,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar við undirritun samnings í dag. “Það er gríðarlega þarft og gott verkefni að hlúa vel og með markvissum hætti að syrgjendum í kjölfar ótímabærs andláts eins og Sorgarmiðstöðin mun leggja áherslu á, ekki síst börnum og ungmennum sem missa foreldri eða systkini“ segir Rósa.
Heilsa, samfélag og sköpun undir hatti Lífsgæðaseturs St. Jó
Gamla hús St. Jósefssystra, sem þær byggðu og vígðu formlega 5. september 1926 , hefur nú 6 árum eftir lokun spítalans fengið nýtt hlutverk sem lífsgæðasetur. Fimmtán rekstaraðilar eru þegar komnir með aðstöðu í setrinu og bjóða þeir upp á þjónustu sem miðar að því að efla og auka heilsu, vellíðan og lífsgæði íbúa og vina Hafnarfjarðar með einum eða öðrum hætti. Sorgarmiðstöðin er ein þessara aðila og dvelur undir hatti Lífsgæðaseturs St.Jó með m.a. sálfræðingum, markþjálfum, félagasamtökum, fræðslusetri, jóga og heilsueflingu fyrir eldri borgara svo fátt eitt sé nefnt. Opnunarhátíð Sorgarmiðstöðvar verður í Lífsgæðasetri St. Jó fimmtudaginn 12. september kl. 20.
Myndatexti: Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar og K. Hulda Guðmundsdóttir stjórnarformaður Sorgarmiðstöðvar undirrita samstarfssamning.