Hjá Hafnarfjarðarbæ stendur nú yfir árleg leit eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir snyrtileika og fegurð garða, gatna, opinna svæða og lóða í Hafnarfirði. Veittar eru viðurkenningar fyrir fallegasta garðinn, fallegustu götuna og snyrtilegustu stofnanalóðina eða atvinnusvæðið. Við ræddum við Berglindi Guðmundsdóttur, landslagsarkitekt hjá Hafnarfjarðarbæ og starfsmann fegrunarnefndar.  

Viðurkenningarskjal sem eigendur Mánastígs 6 fengu árið 1953.

Veitt hefur verið viðurkenning fyrir fegurstu garða og götur Hafnarfjarðar síðan á 6. áratug síðustu aldar með smá hléum þó, en fyrir fjórum árum var áherslunni breytt yfir í snyrtilegustu garða og götur sem þykja skapa ákveðna fyrirmynd, jafnt á íbúðarsvæðum, stofnanalóðum og atvinnusvæðum. Með framtakinu vill Hafnarfjarðarbær vekja áhuga almennings á fegrun umhverfis innan bæjarins og vera öðrum hvatning. „Fegrunarnefndin var fyrr á tímum þriggja manna og pólitískt kjörin með garðyrkjustjóra. Þá voru alltaf konur í nefndinni, en það hefur breyst í seinni tíð, eins og margt annað, enda margir karla mjög færir í faginu,“ segir Berglind. Einnig sé viðurkenning sem heitir Snyrtileikinn en Kirkjugarður Hafnarfjarðar og Gróðrastöðin Þöll hafa fengið þá viðurkenningu og þá er úbúinn skjöldur og settur á hús þeirra.

Berglind og goðsögnin Dísa blóma. Mynd/OBÞ
Auglýsing um störf í blómaflokknum. Mynd/skjáskot af Tímarit.is

Blómaflokkur Dísu fegraði bæinn

Hún rifjar upp hversu stolt hún var að tilheyra blómaflokki Dísu, Ásdísar Guðbjargar Konráðsdóttur, á 8. áratug síðustu aldar, en það þótti mjög eftirsóknarvert að tilheyra þeim hópi sem þekktur var fyrir að fegra bæinn. „Þar lærði ég aldeilis handtökin og vann hjá Dísu samhliða menntaskólanámi. Dísa var í senn harður verkstjóri en einnig sanngjörn. Hún kenndi okkur að vinna og að vera stolt af afrakstrinum og að líða vel að verki loknu. Við fengum líka oft hrós frá bæjarbúum. Fólk tók eftir þessu,“ rifjar Berglind upp. 

Hér er dæmi um snyrtilegan garð sem hefur fengið viðurkenningu, Fjóluhvammur 9. Mynd/OBÞ
Álfaskeið, sem fékk viðurkenningu 2018. Mynd aðsend.

Sumir hafa fengið fleiri en eina viðurkenningu

Hafnarfjarðarbær hefur stækkað mjög mikið undanfarna áratugi. Götur í bænum eru á fjórða hundrað og fyrirtæki hátt í 700. Það er því ekki skrýtið að leitað sé ábendinga. „Margir íbúar eru með mjög snyrtilega garða og sumir hafa fengið oftar en einu sinni viðurkenningu. Svo hefur götumyndin líka mikið að segja. Í gamla daga fengu göturnar nafnið Stjörnugatan. Það er svakalega gaman að geta verðlaunað götu þar sem allir íbúar eru samtaka um að hafa snyrtilegt í kringum sig. Það getur oft verið einn sem skemmir fyrir, en við fylgjumst vel með og sjáum hvort tekið hafi verið til hendinni á milli ára,“ segir Berglind og brosir. „Það er snyrtleikinn sem skiptir mestu máli og að alúð hafi verið lögð við garð og greinilegur áhugi um að hafa fallegt í kringum sig.“

Val til viðurkenninga byggir eingöngu á innsendum tillögum og því eru íbúar Hafnarfjarðar, starfsmenn bæjarins og aðrir áhugasamir hvattir til virkrar þátttöku. Viðurkenningar verða veittar við hátíðlega athöfn í Gróðrarstöðinni Þöll við Kaldárselsveg í lok ágúst eða byrjun september. „Það er mikilvægt að íbúar sem og fyrirtæki séu hvött áfram og verðlaunuð fyrir góða umgengni og snyrtilegt umhverfi. Þessir flottu aðilar eru öðrum fyrirmynd og hvatning til framkvæmda,“ segir Berglind að lokum.

Snyrtileg lóð fyrirtækis við Hringhellu 9 sem fékk viðurkenningu 2018. Mynd/OBÞ

Þessi umfjöllun er samstarf.