Um 150 taupokar hafa verið saumaðir í samstarfsverkefni Hrafnistu og leikskólans Norðurbergs „pokalaus Hafnarfjörður“, en það hefur staðið yfir í eitt skólaár. Þetta fallega framtak er liður í að framfylgja umhverfis- og auðlindastefnu Hafnarfjarðarbæjar.

Nemendur Norðurbergs koma með efnið sem nota á í taupokana.

Nemendur, starfsfólk og foreldrar leikskólans söfnuðu saman efni, s.s. gömlum gardínum, dúkum, sænguverum og fleiru, og komu því á vinnustofu iðjuþjálfunnarinnar á Hrafnistu. Heimilsfólk, þjónustunotendur og starfsfólk á Hrafnistu saumuðu síðan taupokana undir óhrein og blaut föt leikskólabarnanna, sem notaðir verða í stað plastpoka.

Spennandi að taka þátt.

Sigurborg Sigurgeirsdóttir og Elín Eiríksdóttir hörkuduglegar í saumaskapnum.

Í upphafi leikskólaárs er pokunum dreift í fatahólf barnanna og í lok skólaárs innheimtir leikskólinn pokana og eiga foreldrar að skila þeim hreinum og stroknum til næstu barna. Tilgangur verkefnisins er að gera leikskólann eins plastpokalausan og hægt er. Eina sem keypt var voru skóreimar sem notaðar eru til að loka pokunum. Saumaskapurinn tók um eitt skólaár og börnin fóru tvær ferðir á Hrafnistu til að þræða reimarnar í pokana.

Guðjón Frímannsson straujari og Dagbjört Jakobsdóttir, aðstoðarmaður iðjuþjálfa.

Reimarnar komnar í.

Pokarnir fallegu, sem notaðir eru undir óhrein föt leikskólabarnanna.

Þetta er langt frá því að vera fyrsta samstarfsverkefni Hrafnistu og Norðurbergs. Í sex vetur hafa börn frá Norðurbergi heimsótt Hrafnistu einu sinni í mánuði. Leikskólinn á sína vinadeild á Hrafnistu sem er Báruhraun. Þá er verið syngjast á, spjalla og njóta dýrmætrar samveru. Oft eru bakaðar kökur eða vöfflur og borðað saman og gleðin er einkennandi á báða bóga.

Vinátta á báða bóga.

Myndir: OBÞ og aðsendar. 

Þessi umfjöllun er samstarf.