Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Sigurð Nordal í stöðu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs. Sigurður starfaði á árinu 2020 tímabundið við ráðgjöf og aðstoð við stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar og vann þar m.a. að mikilvægum fjárhagslegum greiningum og úttektum. Sigurður mun hefja störf í mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.
Sigurður Nordal tekur við starfinu af Sigríði Kristindóttur sem skipuð hefur verið í embætti sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu. Sigurður nam hagfræði við Háskóla Íslands og Columbia háskóla í New York. Hann starfaði hjá Seðlabanka Íslands, bönkum og fjármálafyrirtækjum í ýmsum ábyrgðarstörfum um sextán ára skeið.
Sigurður var framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands við flutning hljómsveitarinnar í Hörpu og fyrstu árin í nýju tónlistarhúsi. Þá stýrði hann viðskiptadeild Morgunblaðsins um árabil. Sigurður hefur víðtæka þekkingu og reynslu af rekstri og verkefnum m.a. sveitarfélaga og hefur starfað sem ráðgjafi m.a. fyrir opinbera aðila og setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka.
Hagvangur annaðist ráðningarferlið og sóttu alls 30 um stöðuna.
Mynd/aðsend