Sr. Jónína Ólafsdóttur, prestur á Akranesi, hefur verið ráðin í starf sóknarprests í Hafnarfjarðarprestakalli og hefur starfandi biskup Íslands, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, staðfest ráðningu hennar. Umsóknarfrestur rann út 9. nóvember s.l. Þetta kemur fram á fréttasíðu Þjóðkirkjunnar.
Sr. Jónína Ólafsdóttir er fædd á Egilsstöðum 1984 og ólst upp í Þingeyjarsýslu frá fimm ára aldri. Hún lauk BA-prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 2008 og mag. theol.-prófi 2017, diplómaprófi í sálgæslu 2019 og vinnur nú að lokaritgerð til MA-prófs í guðfræði á sviði kristinnar hjónabandssiðfræði.
Jónína hefur starfað sem aðstoðarmaður dr. Arnfríðar Guðmundsdóttur, prófessors. Þá hefur hún fengist við margvísleg störf í söfnuðum á höfuðborgarsvæðinu síðastliðin tólf ár. Sr. Jónina var settur prestur í Dalvíkurprestakalli frá 1. október s.l. til 31. mars 2020. Hún var vígð 11. ágúst á síðasta ári. Hún var ráðin í febrúar á síðasta ári sem prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi.
Eiginmaður Jónínu er Eggert Þ. Þórarinsson, forstöðumaður í Seðlabanka Íslands, og eiga þau tvö börn.
Auglýst var eftir sóknarpresti og að viðkomandi gæti hafið störf 1. desember 2020 eða í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að ákvörðunum um ráðningu lægi fyrir.
Jónína tekur við embættinu af Sr. Þórhildi Ólafs sem lét af störfum í nóvember á síðasta ári. Jónína er, eins og forveri hennar, eina konan sem gegnir starfi prests í Hafnarfirði.