Sandra Líf Þórarinsdóttir Long, sem leitað hefur verið að frá því aðfaranótt laugardags, fannst látin á þriðja tímanum í dag í fjörunni á Álftanesi, ekki langt frá upphafsstað leitarinnar um helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Sandra Líf var 26 ára og búsett í Hafnarfirði. Mynd/aðsend

Ekki er talið að andlát Söndru Lífar hafi borið að með saknæmum hætti.

Fjölskylda hennar vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem veittu aðstoð við leitina.