Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í gær að ganga að tilboði HSV eignarhaldsfélags slhf. í 15,42% eignarhlut bæjarins í HS Veitum fyrir 3,5 milljarða króna. Samtökin íbúalýðræði höfðu harmað áformin og krafist íbúakosningar um málið.
Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að undirbúningur að sölu hlutabréfanna í HS Veitum hafi hagist með samþykkt bæjarráðs í apríl. Hluturinn hafi verið settur í opið útboðsferli og fjölmargir fjárfestar sýnt áhuga á hlutabréfunum. Eftir sex mánaða ítarlegt söluferli hafi verið ákveðið að taka tilboði HSV eignarhaldsfélags í hlutinn. Að baki félaginu standi 14 lífeyrissjóðir (90%) auk annarra fagfjárfesta.
Ennfremur kemur fram að Hafnarfjörður hafi verið á meðal hluthafa í HS Veitum frá stofnun árið 2008. Fyrirtækið hafi annast sölu og dreifingu á heitu vatni, köldu vatni og dreifingu á raforku á Suðurnesjum, á nokkrum stöðum á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu. Í Hafnarfirði snúi þjónusta fyrirtækisins að dreifingu á rafmagni.
„Vel heppnuð sala á liðlega 15% hlut í HS Veitum er fagnaðarefni fyrir Hafnfirðinga. Gott verð fékkst fyrir hlutinn og mun andvirðið styrkja bæjarsjóð Hafnarfjarðarbæjar verulega til að mæta tekjutapi og efnahagslegum þrengingum vegna Covid-19 faraldursins,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í tilkynningunni. „Hluturinn í HS Veitum hefur engin áhrif á íbúa í Hafnarfirði en verðlagning á raforkudreifingu er bundin ströngum skilyrðum í raforkulögum. Kaupendur eru að mestu lífeyrissjóðir sem standa að baki yfir helmingi af lífeyriskerfi landsins. Andvirði sölunnar dregur úr lánsfjárþörf Hafnarfjarðarbæjar og þar með afborgunum og vöxtum í framtíðinni og veitir um leið færi á því að sækja fram með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.“
Forsíðumynd/OBÞ