Samkomulag á milli 220 Fjarðar og Hafnarfjarðarbæjar var undirritað á dögunum þess efnis að Hafnarfjarðarbær fái afhent til leigu eða kaups 1.200-1.500 m2 húsnæði undir nýtt bókasafn í nýjum miðbæjarkjarna sem mun rísa á Strandgötu 26-30 og tengjast núverandi Verslunarmiðstöð að Fjarðargötu 13-15. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.
Fjárfestingarfélagið 220 Fjörður hyggst hefja framkvæmdir um að reisa um 6.000 m2 verslunar- og þjónustubyggingu á Strandgötu 26-30, sem mun tengjast við Fjörð verslunarmiðstöð. Þjónustukjarninn mun bjóða upp á alla þá kjarnaþjónustu sem góður miðbær þarf að bjóða upp á, svo sem matvöruverslun, pósthús, heilsugæslu, bankaþjónustu, apótek, veitingastaði, kaffistaði ásamt því að upp á nútímalegt bókasafn. Samkomulagið gerir ráð fyrir að Hafnarfjarðarbær fái sinn hluta af húsnæðinu afhentan á tímabilinu 2023-2026 og reisi þar nútímalegt bókasafn sem svarar betur þörfum notenda og opnar á nýja möguleika og tækifæri til fjölbreyttari þjónustu, miðlunar og samveru.
„Með þessari framkvæmd erum við bæði að svara ákalli íbúa um aukna þjónustu og verslun og aukinni eftirspurn eftir verslunar- og þjónustuhúsnæði í Hafnarfirði. Um er að ræða mjög metnaðarfullt verkefni sem mun stórauka verslunar- og þjónusturými í miðbænum auk þess að bæta aðgengi íbúa að verslun og þjónustu í heimabyggð. Viðræður eru þegar hafnar við stóra verslunarkeðju um opnun á matvöruverslun í húsinu. Með nýbyggingunni náum við loksins að tengja betur Strandgötuna og Fjarðargötuna og tryggja þannig betur flæði og umferð um miðbæinn. Húsið er hornsteinn uppbyggingar í miðbænum. Það eru spennandi tímar framundan og vonandi getum við hafist handa strax á þessu ári,“ segir Guðmundur Bjarni Harðarson framkvæmdastjóri Fjarðar, í tilkynningunni.
„Það verður mikil lyftistöng fyrir Hafnarfjörð þegar byggingin verður risin og framboð fjölbreyttrar starfsemi heldur áfram að aukast í bænum. Sveitarfélagið er einnig að taka spennandi skref með því að ákveða að flytja bókasafnið í þetta nýja húsnæði og stuðla þannig að frekari þróun og eflingu á þjónustu þess,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, einnig í tilkynningunni.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við nýbygginguna hefjist á árinu 2021. Samhliða hefst vinna við að móta og vinna með hugmyndir fyrir þjónustu og nýjungar á nýju og nútímalegu bókasafni þar sem m.a. verður leitað í hugmyndabrunn íbúa, starfsfólks og annarra hagsmunaaðila.
—
Mynd: Samkomulagið var undirritað á dögunum. Hér má sjá þau Sigurjón Ólafsson sviðstjóra þjónustu- og þróunarsviðs, Sigríði Kristinsdóttur fyrrum sviðstjóra stjórnsýslusviðs og núverandi sýslumann á höfuðborgarsvæðinu, Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra, Ágúst Bjarna Garðarsson formann bæjarráðs, Guðmund Bjarna Harðarson framkvæmdastjóra Fjarðar og Haraldur Reynir Jónsson.