Óskin rættist hjá unnendum og aðstandendum Sönghátíðar í Hafnarborg: Það tekst að halda hátíðina í ár þrátt fyrir kófið og það sem meira er, einstakt úrval tónlistarmanna mætir til leiks með fjölbreytta dagskrá. Samkenndin sem við höfum öll fundið svo sterkt fyrir undanfarið verður þema hátíðarinnar í ár. Tónlist og ljóðlist tjá sammannlegar tilfinningar þvert yfir tíma og lönd, hjálpa okkur að skilja okkur sjálf og að setja okkur í spor annarra.

Átta tónleikar verða í boði með framúrskarandi söngvurum, sönghópum og hljóðfæraleikurum sem flytja íslenska og erlenda tónlist frá endurreisnartímabilinu til okkar daga. Verði er stillt í hóf. Hægt er að velja um kaup á hátíðarpasssa fyrir aðeins 9.000 kr. eða að kaupa miða á staka tónleika.

Hátíðin hefst með flutningi kammerkórsins Hljómeykis á íslenskum kórperlum undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar. Söng- og leikkonan Vala Guðna, flytur sönglög frá ólíkum löndum með Matta fiðlu og Sigurði Helga á ókeypis fjölskyldutónleikum, þar sem börn á tónlistarnámskeiði hátíðarinnar taka einnig þátt. Stórsöngvararnir Dísella Lárusdóttir og Bjarni Thor Kristinsson flytja aríur og dúetta úr ástkærum óperum með Antóníu Hevesi píanóleikara.

Á tónleikunum Samúðarsöngvar leita þau Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari til fortíðar í flutningi á lútusöngvum, barokkaríum og fornum þjóðlögum. Auk þess að syngja leikur Eyjólfur á barokkflautu og langspil. Sönghópurinn Cantoque flytur Aldasöng eftir Jón Nordal, sem speglast í nýjum verkum eftir Hafstein Þórólfsson og Steinar Loga Helgason sem jafnframt er stjórnandi hópsins. Nemendur á fjögurra daga master class námskeiði Kristins Sigmundssonar syngja sönglög og aríur við meðleik Hrannar Þráinsdóttur.

Einn helsti hvalreki hátíðarinnar er hetjutenórinn og óperustjarnan Stuart Skelton, sem nú má kalla ,,tengdason Íslands“, en þau Matthildur Anna Gísladóttir færa hlustendum efnisskrá sem brúar bilið á milli rómantíska tímabilsins og 20. aldarinnar. Hátíðinni lýkur með tónleikum til heiðurs tónskáldinu Jóni Ásgeirssyni. Þar flytja Kristinn Sigmundsson bassi, Herdís Anna Jónasdóttir sópran, Hrólfur Sæmundsson baritón, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Gunnlaugur Bjarnason, baritón og Vox Domini verðlaunahafi, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari söngtónlist eftir tónskáldið. Undir lok tónleikanna er öllum tónleikagestum boðið að taka undir í Maístjörnunni.

Allir tónleikarnir fara fram í aðalsal Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, Strandgötu 34 og miðasala fer fram á tix.is. Nánar á www.songhatid.is

Á hátíðinni er einnig boðið upp á ýmis námskeið; master class með Kristni Sigmundssyni, söngnámskeið fyrir byrjendur með Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur og tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir 6-12 ára krakka, sem svo taka þátt í Fjölskyldutónleikum. Fyrir minnstu börnin eru í boði Krílasöngur fyrir 6-18 mánaða með foreldrum, sem Svafa Þórhallsdóttir leiðir, og tónlistarsmiðja fyrir 3-5 ára með foreldrum, í umsjón Valgerðar Jónsdóttur.

Listrænir stjórnendur og stofnendur Sönghátíðar í Hafnarborg eru Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari.
Á Sönghátíð í Hafnarborg er ekki einungis leitast við að leggja rækt við list augnabliksins, heldur er einnig horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar valdar myndbandsupptökur af tónleikum. Þar birtast einnig viðtöl sem Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir tekur við söngvara.
Sönghátíð í Hafnarborg er sjálfstæð hátíð, sem er haldin í samstarfi við Hafnarborg, og nýtur stuðnings Hafnarfjarðarbæjar, Tónlistarsjóðs og Landsbankans.
Tónleikar:
Fimmtudagur 2.7.2020 kl. 20:00 (liðnir)
Sólin heim úr suðri snýr. Kammerkórinn Hljómeyki flytur íslenskar kórperlur. Stjórnandi er Þorvaldur Örn Davíðsson.
Föstudagur 3.7.2020 kl. 17:00
Fjölskyldutónleikar. Vala Guðna söng- og leikkona, Matthías Stefánsson fiðluleikari og Sigurður Helgi Oddsson píanóleikari flytja sönglög frá ólíkum löndum. Ókeypis aðgangur.
Laugardagur 4.7.2020 kl. 17:00
Óperugala. Dísella Lárusdóttir sópran, Bjarni Thor Kristinsson bassi og Antónía Hevesi píanóleikari flytja aríur og dúetta úr ástkærum óperum.
Sunnudagur 5.7.2020 kl. 17:00
Samúðarsöngvar. Eyjólfur Eyjólfsson tenór, barokkflauta og langspil, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítar flytja sönglög frá endurreisnar- og barokktímanum.
Þriðjudagur 7.7.2020 kl. 20:00
Aldasöngur og íslenskar gersemar. Sönghópurinn Cantoque Ensemble flytur Aldasöng eftir Jón Nordal, sem einnig speglast í nýjum verkum eftir Steinar Loga Helgason og Hafstein Þórólfsson. Á efnisskránni eru einnig ástsæl íslensk kórlög. Stjórnandi er Steinar Logi Helgason.
Fimmtudagur 9.7.2020 kl. 20:00
Master class tónleikar. Nemendur á master class námskeiði Kristins Sigmundssonar flytja sönglög og óperuaríur. Hrönn Þráinsdóttir leikur með á píanó.
Laugardagur 11.7.2020 kl. 17:00
The Modern Romantic. Stuart Skelton tenór og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari flytja ljóðatónlist sem brúar bilið á milli rómantíska tímabilsins og 20. aldarinnar.
Sunnudagur 12.7.2020 kl. 17:00
Jón Ásgeirsson – heiðurstónleikar. Kristinn Sigmundsson bassi, Herdís Anna Jónasdóttir sópran, Hrólfur Sæmundsson baritón, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Gunnlaugur Bjarnason, baritón, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari flytja söngtónlist eftir Jón Ásgeirsson.