Nýtt ungmennahús hefur tekið til starfa í gömlu Skattstofunni að Suðurgötu 14 í Hafnarfirði. Í ungmennahúsi stendur ungmennum á aldrinum 16-25 ára til boða fjölbreytt starf í vímulausu og öruggu umhverfi. Starf sem verður með tímanum mótað af hópnum sjálfum.

Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Rósa Guðbjartsdóttir, afhenti á dögunum húsnæðið formlega til verkefnastjóra ungmennahúss sem stýrir starfsemi hússins og tekur þar vel á móti öllum ungmennum. John Friðrik Bond Grétarsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur, var ráðinn sem verkefnastjóri í lok árs 2018 og hefur síðan þá unnið að breytingum á húsnæði og framkvæmd þeirra stefnumótunar sem mörkuð var síðasta árið. John Bond er alinn upp í Hafnarfirði og þekkir frá fyrstu hendi hversu mikilvægt það er að bjóða upp á lausnir, möguleika og stuðning á réttum tímapunkti í lífi ungs fólks.

„Við fórum af stað með þarfagreiningu fyrir ungmennahús og stefnumótun fyrir starfsemi þess í árslok 2017 og var niðurstaðan sú að skynsamlegt væri fyrir Hafnarfjarðarbæ að fara af stað með nýtt samfélagshús fyrir aldurshópinn 16-25 ára. Við þurfum að halda vel utan um þennan, oft á tíðum, brothætta hóp sem þarf á samveru, samskiptum og stuðningi að halda á þessum mikilvægu mótunarárum í lífi sínu“ segir Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar sem er einn þeirra sem hefur haft veg og vanda af þessari vinnu. „Þetta verkefni talar vel saman við önnur verkefni sveitarfélagsins á sviði forvarna og eflingar heilsu og heilbrigðis hjá unga fólkinu okkar. Nú eru ungmennin komin með eigin húsnæði og geta þar lært saman, mótað og fengið aðstoð við framkvæmd hugmynda, sinnt áhugamálum sínum og hitt vini og félaga á öruggum og góðum stað“ segir Geir. Ungmennahús er opið frá kl. 13 – 17 alla virka daga. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga er opið áfram til kl. 22. Opnunartími mun svo breytast eftir þörfum og aðsókn ungmennanna sjálfra.

Myndatexti: Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, afhendir hér formlega John Bond, verkefnastjóra, lyklavöldin að nýju ungmennahúsi í Hafnarfirði.