Óskað er eftir hugmyndum að dagskrá Bjartra daga sem haldnir verða dagana 24.-28. apríl í tengslum við Sumardaginn fyrsta eins og undanfarin ár.
Bjartir dagar er menningarhátíð sem endurspeglar allt það fjölbreytta menningarstarf sem á sér stað í Hafnarfirði sem stofnanir, félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar standa að. Á Björtum dögum taka því fjölmargir þátt í að skapa viðburði um allan bæ. Það getur verið eitthvað sem stendur til nú þegar eða eitthvað alveg nýtt, eitthvað risastórt eða minna í sniðum, eitthvað fyrir börn eða eitthvað fyrir fullorðna en allavega eitthvað áhugavert sem hvetur bæjarbúa til virkrar þátttöku og góðrar samveru.
Örstyrkir
Til þess að styðja við frumvæðisverkefni verður hluta af fjármagni Bjartra daga, allt að einni milljón, úthlutað til ýmissa verkefna sem fara fram á Björtum dögum. Stofnanir, félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar geta sótt um um fjármagn til verkefna sem fara fram dagana 24.-28. apríl að hámarki 100.000 kr. Beiðni um fjárframlag skal senda verkefnastjóra Bjartra daga á andriom@hafnarfjordur.is fyrir 27. mars og úthlutun verður lokið 1. apríl. Við úthlutun verður tekið mið af reglum menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðar um styrki til menningarstarfsemi.
Viltu skrá viðburð til þátttöku?
Hafnarfjarðarbær heldur utan um almenna skipulagningu og samhæfingu viðburða, stendur að útgáfu dagskrár og kynnir hátíðina. Nú er um að gera að leggja höfuðið í bleyti og koma með hugmyndir að dagskrá og senda undirrituðum upplýsingar. Lokafrestur til að senda inn dagskráratriði er 7. apríl.