Sumaropnun hefst á Byggðasafni Hafnarfjarðar á 112 ára afmælisdegi bæjarins þann 1. júní með opnun á tveimur nýjum sýningum. Þemasýning um grásleppukarla opnar í Pakkhúsi og ný hernámssýning hefur verið sett upp á Strandstíg. Aðgangur að öllum söfnum Byggðasafns er ókeypis og eru öll fimm hús safnsins opin frá kl. 11-17 alla daga yfir sumartímann.
Í Pakkhúsinu eru að öllu jöfnu þrjár sýningar í gangi í einu, fastasýning um sögu bæjarins, leikfangasýning og þemasýning. Ný þemasýning sem opnuð hefur verið í forsal Pakkhússins tekur til grásleppukarla og smábátaútgerðar í bænum. Um aldir sóttu Hafnfirðingar sjóinn á árabátum en í upphafi 20. aldarinnar hófst vélvæðing smábátaútgerðarinnar sem þróaðist áfram þar til hún náði ákveðnum hátindi í bænum á sjöunda og áttunda áratuginum. Leitast er við að varpa ljósi á þessa sögu á sýningunni.

Til að minnast þess að nú eru liðin 80 ár frá hernámi Íslands í síðari heimsstyrjöldinni hefur Byggðasafn Hafnarfjarðar sett upp ljósmyndasýninguna „Hafnarfjörður á hernámsárunum 1940 – 1945“. Sýningin hefur verið sett upp á Strandstígnum meðfram höfninni, allt frá Drafnarslipp og út Herjólfsgötu, en þar er að finna um 50 ljósmyndir sem varpa ljósi á þetta tímabil í sögu bæjarins.
Forsíðumynd: Þemasýning um grásleppukarla opnar í Pakkhúsi á 112 ára afmælisdegi Hafnarfjarðarbæjar 1.júní