Allt messuhald og vorfermingar falla niður í Þjóðkirkjunni. Ákvörðunin er tekin með almannaheill í húfi og gildir á meðan samkomubann er í gildi. Sem stendur er gert ráð fyrir sumarfermingum og haustfermingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá biskupi Íslands á vefsíðunni kirkjan.is.

Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær farið verður af stað aftur með hefðbundið starf. Ákvörðun biskups Íslands verður endurskoðuð í samhengi við frekari ákvarðanir stjórnvalda.

Hins vegar verður streymt frá messuhaldi á netinu þann tíma sem almennt messuhald fellur niður.

Prestar landsins halda áfram að gegna mikilvægri sálgæsluþjónustu með öllum þeim varúðarsjónarmiðum sem landlæknir hefur gefið út.
Boð þess efnis fóru frá biskupi Íslands út til presta rétt í þessu.

„Ljóst er að þessi ákvörðun setur þann einstaka viðburð sem ferming er hverjum einstaklingi og fjölskyldu hans í erfiða stöðu. Fermingardagur er tímamótaviðburður í lífi einstaklinga – um leið er dagurinn oft mikið ættar- og vinamót. Þetta er því þung ákvörðun að taka, en um leið afar mikilvæg og tekin með velferð fólks í huga.“ – segir í tilkynningunni.

Sem stendur er gert ráð fyrir sumarfermingum og haustfermingum. Allar nánari útfærslur verða gerðar í samráði presta og safnaða. Við hvetjum því alla að hafa samband við sinn prest eða kirkju varðandi framhaldið.

Upplýsingar frá Þjóðkirkjunni munu birtast á kirkjan.is – Facebook og Twitter.

Biskup Íslands mun ávarpa þjóðina í útvarpsmessu á sunnudag.