Setningarhátíð Lífshlaupsins fór fram í 13. sinn í morgun og hófst það að þessu sinni í Skarðshlíðarskóla. Ingibjörg Magnúsdóttir skólastýra, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstóri Hafnarfjarðarbæjar og Þráinn Hafsteinsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ ávörpuðu gesti og tóku svo þátt í þrautum í tilefni dagsins.
Hekla Sif Óðinsdóttir, nemandi í 8. bekk söng eitt lag og nemendur í 8. bekk voru með óvænt dansatriði. Blossi lukkudýr ÍSÍ mætti að sjálfsögðu á svæðið.
Athöfnin hófst á því að Ingibjörg Magnúsdóttir skólastýra bauð gesti velkomna. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri og Þráinn Hafsteinsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ ávörpuðu svo gesti áður en þau kepptu í skemmtilegum þrautum sem Ana og Viktor, íþróttakennarar skólans stýrðu af mikilli snilld.

Blossi, lukkudýr ÍSÍ mætti á svæðið og þegar dagskrá lauk drifu nemendur og kennarar sig út og hlupu míluna sína. Skarðshlíðarskóli hefur frá haustinu 2018 farið út og hlaupið, gegnið eða skokkað daglega eina mílu. Verkefnið er að skoskri fyrirmynd og heitir „The Daily Mile“ en Skarðshlíðarskóli er fyrsti skólinn á Íslandi til að taka þátt í þessu alþjólega verkefni og óhætt er að segja að mikil ánægja með þátttökuna. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur skóla landsins til að taka upp þetta frábæra verkefni enda þykir það afar einfalt í framkvæmd. Tilvalið að skrá svo hreyfinguna í Lífshlaupið.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna með það að markmiði að hvetja landsmenn til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta.
Lífshlaupið er góður vettvangur fyrir þá sem vilja byrja að hreyfa sig eða eru nú þegar að hreyfa sig reglulega og vilja skrá hreyfinguna markvisst, hafa yfirsýn og setja sér markmið. Auk þess að hvetja til hreyfingar daglega þá skapar verkefnið skemmtilega stemningu á vinnustöðum og í skólum sem keppa sína á milli og innanhúss.