Hafnfirðingurinn, leikarinn, söngvarinn, ljóðskáldið og skemmtikrafturinn Þórhallur Sigurðsson, Laddi, var á nýársdag sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar menningar. Víða mátti heyra og lesa orðið „loksins“ af þessu tilefni, enda hefur Laddi skemmt landanum og um áratuga skeið, gefið út plötur, leikið í kvikmyndum og tekið þátt í miklum fjölda skemmtiþátta. 

Laddi, fyrir miðju, ásamt þeim sem einnig voru heiðruð á nýársdag.

Laddi er fæddur árið 1947 og verður því 72 ára 20. janúar nk. Hann hefur sem handritshöfundur og leikari, t.d leikið í Heilsubælinu, Imbakassanum og Spaugstofunni Einnig hefur hann leikið í mörgum áramótaskaupum og tekið þátt í að semja þau. Hann hefur skapað fjöldann allan af persónum sem margir kannast við og nægir að nefna Eirík Fjalar, Saxa lækni, Skúla rafvirkja, Magnús bónda, Ho Si Mattana, Elsu Lund, Martein Mosdal og svo mætti lengi telja. Kvikmyndir sem hann hefur leikið í eru t.d Stella í orlofi, Stella í framboði, Magnús, Regína, Íslenski draumurinn, Jóhannes, Ófeigur gengur aftur og fleiri. Einnig hefur hann starfað mikið í leikhúsi, en frægustu hlutverk hans á þeim vettvangi eru líklega Fagin í Óliver Twist og Tannlækninn í Litlu Hryllingsbúðinni.

Laddi var í tvíeykinu Halli og Laddi ásamt bróður sínum Haraldi Sigurðssyni. Þeir bræður nutu gríðarlegra vinsælda á áttunda áratug síðustu aldar, þóttu ómissandi í skemmtiþáttum í sjónvarpi og gáfu út nokkrar hljómplötur með tónlist og gamanmálum.

Laddi hóf tónlistarferil sinn sem trommari í hljómsveitinni Faxar. Í seinni tíð hefur hann samið fjölda laga og mörg þeirra hafa náð vinsældum, t.d. Sandalar, Austurstræti og Búkolla, en útgefin lög hans og textar skipta tugum. Hann starfaði um tíma með hljómsveitinni Brunaliðinu, en mest af tónlistarefni hans hefur komið út á sólóplötum eins og Einn voða vitlaus og Deió, auk þess sem það er að finna á fjölmörgum safnplötum.

Á níunda áratugnum stofnuðu Halli og Laddi HLH flokkinn ásamt öðrum Hafnfirðingi, Björgvini Halldórssyni. Flokkurinn stældi útlit og tónlistarstíl rokktímans milli 1950 og ’60 og átti nokkra sívinsæla smelli.

Laddi tók þátt í stofnun Spaugstofunnar 1985 og starfaði með þeim hóp fyrstu árin. Hann hefur einnig skotið upp kollinum í þáttum Spaugstofunnar í seinni tíð, oftast sem gestaleikari, en veturinn 2013-’14 tók hann þátt í heilli þáttaröð á Stöð 2. Hann hefur talsett mikinn fjöld teiknimynda og kvikmynda og má þar nefna Aladdin, Konung ljónanna, Mulan, Wreck it Ralph, Frosinn, Brakúla og margar fleiri. Þó var það ef til vill eftirtektarverðast þegar hann talsetti allar teiknimyndirnar um Strumpana einn síns liðs.

Laddi á þrjá syni: Martein, Ívar og Þórhall, sem vann keppnina Fyndnasti maður Íslands árið 2007.

Árið 2007 setti Laddi upp sýninguna Laddi 6-tugur í Borgarleikhúsinu til að fagna sextugsafmæli sínu. Í byrjun áttu þetta bara að vera 4 sýningar en vegna gríðarlegrar aðsóknar varð sýningin ein vinsælasta grínsýning sem sett hefur verið upp á Íslandi. Sex árum síðar kom upp sýningin Laddi lengir lífið í Hörpu. Þar sló Laddi enn á nýja strengi, afhjúpaði sjálfan sig og fortíð sína og leyfði áhorfendum að skyggnast inn í sálarlíf mannsins sem hafði skemmt þeim svo vel í öll þessi ár.