Hvatningarverðlaun Markaðsstofu Hafnarfjarðar voru veitt í þriðja sinn í kvöld. Veitingahúsið KRYDD hlaut aðalverðlaunin einnig fengu NÚ framsýn menntun, Karel Karelsson og TRU Flight Training Iceland viðurkenningar. Þá stigu á stokk fyrirlesarar sem fræddu viðstadda um leiðtogafærni og hjónin Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Davíð Sigurgeirsson fluttu ljúf lög. 

Allir viðurkenningarhafar saman komnir á einni mynd.

Fulltrúar eigenda KRYDD, þau Hilmar Þór Harðarson, Hulda Heiðrún Óladóttir, Signý Eiríksdóttir og Geirþrúður Guttormsdóttir.

Í umsögn með hvatningarverðlaunum segir að KRYDD hafi komið inn í hafnfirskt samfélag með látum; svo miklum að tíminn sem fara átti í að aðlaga starfsemina og komast hægt og rólega í gang var enginn þar sem gríðarleg áskókn hefur verið allt frá opnun.

Í röksemdum fyrir valinu sagði m.a.:

Frábær lyftistöng fyrir miðbæ Hafnarfjarðar!

Maður þarf ekki lengur að fara í bæinn fyrir fjör.

Eigendur hafa lagt mikið upp úr því að gestir upplifi skemmtilega kvöldstund í fallegu umhverfi ásamt því að borða góðan mat. Krydd veitingahús fyrir frábæra og öfluga innkomu í veitinga- og skemmtanalíf bæjarins. Bæjarstemningin komin á annað level!

Sigríður Kristjánsdóttir og Gísli Rúnar Guðmundsson, tveir þriggja eigenda NÚ.

Í umsögn Markaðsstofunnar um NÚ segir viðurkenningin fari til fyrirtækis sem hugsi vel út fyrir kassann í starfsemi sinni og fari ótroðnar og spennandi slóðir í nálgun sinni.

NÚ er sjálfstætt starfandi grunnskóli með áherslu á íþróttir og vendinám, fyrir nemendur í 8.-10. bekk. Skólinn starfar eftir gildandi lögum og reglugerðum um grunnskóla og eftir aðalnámskrá grunnskóla. NÚ hóf starfsemi sína í ágúst 2016, með 35 nemendur en í dag eru þeir 60 flestir Hafnafirðingar en einnig eru nemendur úr öðrum sveitarfélögum.

Skólinn miðar námið að einstaklingum en ekki einstaklinginn að náminu. Lögð er áhersla að byggja upp sjálfstæði og sjálfsöryggi í námi. Undibúa unglingana fyrir nútíma þjóðfélag með þeim tækjum sem talin eru sjálfsögð á vinnumarkaði í dag. Mikið er lagt upp úr persónuþroska, markmiðasetningu og að taka ábyrgð á eigin lífi. Markmiðasetning er kennd og þau fá markþjálfun hjá kennurunum sínum.

Allir starfmenn TRU voru staddir erlendis í starfsmannaferð og því tók Jens Bjarnason stjórnarformarður við viðurkenningunni.

TRU Flight Training Iceland sem er dótturfélag Icelandair og sér um rekstur flugherma í þjálfunarsetri Icelandair á Flugvöllum á Völlunum. TRU hóf starfsemi árið 2014 og segja má að starfsemin hafi vaxið hratt því nú rúmum 4 árum síðar eru flughermarnir orðnir þrír. Starfsmenn er 6.

Icelandair er stærsti notandinn, en erlend flugfélög kaupa einnig þjálfun fyrir sína flugmenn í herminum. Á síðasta ári fóru þar fram um 3000 þjálfanir  þarf af 700 fyrir erlend flugfélög, flugmenn sem komu gagngert til landsins til að sækja í þessa þjónustu. Þjálfun er í gangi í um 18 klst á dag að meðaltali 360 daga á ári.

Þessi sérhæfða starfsemi höfðar þannig jafnt til innlends og erlends markaðar, og sýni vel þá fjölbreyttu starfsemi sem hægt er að bjóða upp á á Völlunum miðja vegu (í mínútum talið) milli alþjóðaflugvallarins í Keflavík og miðborg Reykjavíkur, en hver fer þangað þegar þú hefur Hafnarfjörð.

Markaðsstofan telur mikil tækifæri vera til frekari vaxtar hjá fyrirtækinu sem opni enn frekar á tækifæri fyrir aðra flugtengda starfsemi í Hafnarfirði.

Karel Ingvar Karelsson.

Karel Ingvar Karelsson, fyrrverandi skipstjóri,  fékk viðurkenningu fyrir óeigingjarnt starf í 60 ár í þágu Sjómannadagsins í Hafnarfirði. Karel tók fyrst þátt í deginum árið 1958 þá sem unglingur í róðrarsveit en ekki leið á löngu þar til hann var farinn að undirbúna hátíðarhöldin. Af kostgæfni og með virðingu fyrir Sjómannadeginum hefur Karel passað upp á að þær hefðir sem einkenna Sjómannadaginn væri haldið í heiðri. Lagt áherslu á að  sjómannsstarfið kynnt, þeirra minnst sem látist hafa í slysum á sjó og að aldnir sjómenn væru heiðraðir. Einnig hefur hann staðið fyrir ljósmyndasýningu á myndum af öllum þeim sem heiðraðir hafa verið á Sjómannadaginn í Hafnarfirði frá upphafi.

Markaðsstofan þakkaði Karel fyrir hátt í 60 ára framlag hans til viðburðahalds í Hafnarfirði í gegnum þátttöku og skipulagingu á Sjómannadaginum í Hafnarfirði og þannig gert bæinn okkar enn betri og skemmtilegri.

Ása Sigríður Þórsdóttir, framkvæmdastjóri MsH, stýrði athöfninni.

Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur.

Áhugverður og hvetjandi fyrirlestur.

Margt var um manninn og bætt var við stólum.

Pétur Arason frá Manino talaði um mikilvægi þess að fyrirtæki hlúi fyrst og fremst að starfsfólki sínu.

Gömlu brunverðir Varnarliðsins, Ingi Tómasson og Þórður Bergmann Þórðarson.

Friðþjófur Helgi Karlsson og Adda María Jóhannsdóttir.

Davíð Sigurgeirsson og Jóhanna Guðrún.

Myndir/OBÞ