Eins og margoft hefur verið sagt, þá lifum við á undarlegum tímum í augnablikinu. Við vitum hinsvegar að með samheldni, áræðni og kærleikann að leiðarljósi munum við komast í gegnum þetta tímabil eins og öll önnur. Við erum öll í þessu saman og verðum að leggjast á eitt ef við ætlum að sigrast á þessum vágesti.
Stór og smá fyrirtæki, ferðaþjónustuaðilar, listamenn, veitingastaðir og kaffihús munu finna fyrir tímabundnum samdrætti í verslun og þjónustu. Við vitum að sérstaklega minni verslanir, veitingastaðir og einyrkjar finna fyrir erfiðum tímum.
Ég vil því hvetja Hafnfirðinga til að gera það sem við getum til að halda áfram að styðja við verslun og þjónustu í bænum okkar:
- Ef verslanir og veitingastaðir eru opnir og þú treystir þér til að fara út; farðu endilega og sæktu þjónustu hjá þeim. Vel flestir þjónustuaðilar hafa tekið nauðsynlegar ráðstafanir, aukið þrif og endurbætt aðstöðu sína til að geta tekið á móti gestum samkvæmt ráðleggingum Landlæknis.
- Pantaðu vörur á netinu eða fáðu heimsendingu. Margir hverjir eru farnir að bjóða upp á slíka þjónustu. Þau pakka jafnvel inn og senda gjafir heim til þín eða þeirra sem þú vilt gleðja.
- Verslaðu gjafabréf sem þú eða aðrir geta notað síðar eða bókaðu borð hjá veitingastað og greiddu fyrirfram fyrir matinn þinn. Taktu kaffibolla í fóstur eða keyptu jólagjafirnar, fermingargjafirnar eða afmælisgjafirnar snemma í ár.
- Láttu vita af þér og sendu þeim stöðum sem þú heimsækir reglulega póst og skilaboð. Við höfum öll þörf á að heyra hvatningarorð og stuðning.
- Munið að segja öðrum frá því sem þið eruð að gera meðal annars með myllumerkinu #gefumgjöf eða á samfélagsmiðlum. Við getum öll verið hvatning og innblástur fyrir aðra.
Ég hvet bæjarbúa til að halda áfram að versla við þá staði sem þið sækið reglulega. Takið með ykkur kaffi af uppáhalds kaffihúsinu ykkar. Fáið heimsendan mat af veitingastaðnum sem ykkur hefur alltaf langað til að prófa.
Pantið gjafir frá þeim verslunum sem þið vitið að ganga í gegnum erfiða tíma þessa dagana. Höldum áfram að styðja við þá verslun og þjónustu sem þið viljum sjá blómstra í Hafnarfirði til framtíðar.
Sýnum stuðning. Styðjum verslun í heimabyggð. Höldum hjólunum gangandi og horfum til móts bjartari tíma. Gleðjumst heima hjá okkur á næstu vikum og fögnum síðan ærlega um leið og birtir til.
Arnbjörn Ólafsson,
Stjórnarmaður í Markaðsstofu Hafnarfjarðar