Flensborgarskóli kallar eftir umsóknum um styrk úr Fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar. Allir sem lokið hafa fullnaðarprófi frá Flensborgarskólanum og eru í framhaldsnámi geta sótt um styrk úr sjóðnum.
Umsóknir verða að berast rafrænt á netfangið erla@flensborg.is, eigi síðar en á miðnætti föstudaginn 4. desember 2020. Umsóknin skal merkt Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar.
Umsóknum þarf ekki að skila á sérstöku eyðublaði, en þeim þurfa að fylgja staðfest gögn um námsferil eftir að námi í Flensborgarskólanum lauk, auk annarra upplýsinga sem umsækjendur telja að styðji þeirra umsókn.
Nánari upplýsingar gefur Erla skólameistari í síma 565-0400.
Þessi tilkynning er kostuð.