Jónatan Garðarsson, hinn ástsæli og reynslumikli fjölmiðlamaður og Hafnfirðingur, fær Heiðursverðlaun á degi íslenskrar tónlistar í dag. Verðlaunin fær hann fyrir framúrskarandi störf í þágu íslenskrar tónlistar í tímans rás. RÚV greinir frá.
Dagur íslenskrar tónlistar 2020 var haldinn hátíðlegur fyrr í dag og af því tilefni var boðað til dagskrár í Iðnó við Reykjavíkurtjörn, þar sem lelunnurum íslenskrar tónlistar voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi umfjöllun og stuðning við íslenska tónlist.

Í þakkaræðu sem horfa og hlýða má á hér segir hinn afar fjölfróði Jónatan m.a. að hann hafi verið spurður að því einhvern tímann hvort hann ætli ekki að fara að vaxa upp úr þessu tónlistarvafstri. Hann segist hafa aðeins hugsað sig um en svarað svo: „Ég held að maður vaxi ekkert upp úr þessu. Þetta er bara þannig að þetta fylgir manni.“
Í frétt RÚV segir að Jónatan fái viðurkenninguna fyrir framúrskarandi störf í þágu íslenskrar tónlistar í gegnum tíðina, meðal annars fyrir vandaða og metnaðarfulla dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi: „Jónatan hóf að skrifa um popptónlist í dagblöð árið 1977 og um líkt leyti byrjaði hann að gera útvarpsþætti um tónlist. Seinna bættist sjónvarps- og heimildarþáttagerð við. Hann var einn af stofnendum Jazzvakningar og formaður þess félags á upphafsárunum. Hann vann við hljómplötuútgáfu frá 1978 til 1987 og var formaður Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda lengi vel. Jónatan hefur gegnt formennsku hjá Tónlistarsjóði og verið framkvæmdastjóri Félags íslenskra hljómplötuútgefenda.“
Jónatan hefur komið að íslenskri tónlist á margvíslegan hátt í rúma fjóra áratugi. Hann var lengi fararstjóri íslenska Eurovision hópsins, skrifað fjölmargar greinar um tónlistarmenn, hljómplötur og íslenskt tónlistarlíf, komið að bókarskrifum um íslenska tónlist, kennt rokksögu í Tónlistarskóla FÍH og Menntaskóla í tónlist og haldið fyrirlestra um íslenska tónlist um árabil. Hann tók þátt í að setja Rokksafn Íslands á laggirnar og skrifaði allan texta safnsins. Undanfarin ár hefur hann starfað hjá Ríkisútvarpinu meðal annars við þáttagerð.
Forsíðumynd/OBÞ – Tekin í einni af mörgum menningargöngum Jónatans um Hafnarfjörð.