Dagana 24. og 25. ágúst 2019 fer fram Íslandsmeitaramót í töfrateningnum í Flensborgarskólanum. Tugir keppenda innlendir og erlendir hafa skráð sig til leiks og keppt verður í 12 mismunandi greinum. Mótið er alþjóðlega viðurkennt og undir verndarvæng alþjóðlega töfrateningssambandsins (World Cube Association).
Hægt verður að skrá sig á mótið á staðnum og ástæða er til að hvetja bæði nýliða og lengra komna til að taka þátt.
Búast má við spennandi keppni og að bæði íslandsmet og jafvel evrópumet verði slegin en öflugir keppendur eru skráðir til leiks. Fjölbreytt dagskrá er báða dagana frá 09:00-18:00 og er m.a. keppt í því að leysa 3×3 kubba blindandi. Mótinu lýkur sunnudaginn kl. 16:30 með verðlaunaafhendingu. Mótið fer fram í hátíðarsal skólans og aðgangur er ókeypis.
Hver man ekki eftir töfrateningnum sem sló í gegn um allan heim í upphafi níunda áratugs síðustu aldar. Frá þeim tíma hafa verið seldar meira en 350 milljónir eintaka og enn eru áhugasamir um allan heim á öllum aldri að spreyta sig á upphaflega teningnum (Rubiks Cube 3×3) og ótrúlegri flóru annara sambærilegra teninga af öllum stærðum og gerðum.
Vinsældir töfrateningsins eru mjög vaxandi hér á landi og má búast við skemmtilegri og spennandi keppni.
Nánari upplýsingar veita Danival Heide Sævarsson í síma 659 0922 og Pétur Óskarsson í síma 8975488