Actavis-mót Hauka í körfubolta fór fram á Ásvöllum um síðastliðna helgi. Meðal keppenda þar var hópur barna með sérþarfir sem körfuboltamaðurinn Kristinn Jónasson hefur þjálfað í Ólafssal síðan haustið 2018. Við ræddum aðeins við Kristin, sem segir að smám saman hafi æfingarnar þróast með meiri spilamennsku, skotkeppnum og fleiru, sem hafi skilað sér í því að liðið keppti í fyrsta sinn á mótinu.

Á fyrstu æfingar þessa hóps haustið 2018 mættu 2-3 börn með sérþarfir en hægt og rólega yfir þann vetur jókst þetta og að lokum voru um 10-12 börn að mæta með reglulegu millibili. „Þennan fyrsta vetur vorum við að einbeita okkur að grunnhreyfifærni fyrir körfuboltaiðkun eins og að hlaupa aftur á bak og til hliðar, drippla, grípa og kasta í körfu en mörg þessara barna höfðu stundað íþróttina áður með markvissum hætti. Við vorum lítið farin að spila í lok síðasta vetrar en höfðum þó prufað einfaldar 1 á 1 æfingar og þess háttar til þess að fá tenginguna við sókn og vörn,“ segir þjálfarinn Kristinn.

5 þjálfarar í dag og 10-15 börn sem æfa
Þennan vetur sem nú er að líða segir Kristinn að hópurinn hafi stigið hressilega stigið á gjöfina og reynt t.d. að spila á hverri æfingu, taka skotkeppnir, hindrunarboðhlaup þar sem þarf að rekja boltann og margt fleira. „Við gætum þess þó alltaf að börnin fái góða upphitun og árangursríkar teygjur í lok æfingar. Skömmu fyrir jól töldum við þjálfarateymið flesta vera orðnir þannig í stakk búna að hægt væri að fara með þau á mót þar sem þau gætu spilað við önnur börn. Það var því borið undir foreldra sem tóku mjög vel í tillögur okkar þjálfarana en við erum í dag 5 talsins og börnin sem mæta eru oftast á bilinu 10-15.“


Mun aldrei gleyma fyrri leiknum
Hópurinn spilaði tvo leiki á mótinu um síðastliðna helgi en þeim fyrri segir Kristinn að hann muni líklega aldrei gleyma. „Flest börnin voru að taka þátt á sínu fyrsta körfuboltamóti og kom því hressilega á óvart hvað þau voru vel gíruð í þetta frá fyrstu sekúndu, alveg óhrædd og tilbúin í baráttuna.“ Þá hafi verið ómetanlegt að sjá stuðninginn sem krakkarnir fengu frá áhorfendum en og það hafi verið sérstaklega flott að sjá hóp af 8-9 ára strákum úr Stjörnunni sem hvatti þá áfram með því að segja „Áfram Ísland!“.

„Ég ætla að vona að þetta verði ekki í síðasta skiptið sem þessir krakkar fá að heyra þau hvatningarorð en endanlegt markmið okkar þjálfaranna er á einhverjum tímapunkti að fara með hóp af börnunum með sérþarfir á heimsleika Special Olympics, sem fulltrúar Íslensku þjóðarinnar.“
Eftir árangur þessa móts segir Kristinn að lokum að hópurinn stefni að sjálfsögðu á að keppa aftur. „Við höfum 1-2 mót í sigtinu áður en yfirstandandi vetri líkur, þannig við verðum sjáanleg á komandi misserum,“ segir Kristinn afar stoltur að lokum.
Meðfylgjandi gullfallegu myndir tók ein móðirin, Sólný Pálsdóttir.

































Myndir: Sólný Pálsdóttir.