Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2019. Einungis listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði.
Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Umsóknum og ábendingum skal skilað á rafrænu eyðublaði , með tölvupósti á menning@hafnarfjordur.is eða í Ráðhús Hafnarfjarðar merkt:
Þjónustuver Hafnarfjarðar – Bæjarlistamaður
Strandgötu 6
220 Hafnarfirði
Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2019 fær greidda 1,5 milljón króna.
Skilafrestur er til 1. febrúar.
Mynd: Við afhendingu á viðurkenningunni Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2018, sem var Björgvin Halldórsson tónlistarmaður.