Laugardaginn 31. október er hrekkjavaka sem sífellt hefur notið meiri vinsælda hér á landi og víða hefur skapast sú hefð að börn gangi í hús með „grikk eða gott”. Almannavarnir hvetja foreldra og forráðamenn til að halda upp á hrekkjavökuna í heimahúsum í ár.
Að teknu tilliti til þess að enn er í gildi neyðarstig almannavarna vegna COVID-19 er þessari tilkynningu komið á framfæri. Veiran getur svo auðveldlega smyglað sér á milli staða og einstaklinga enda snertifletirnir margir þegar gengið er hús úr húsi til að fá sælgæti. Áhættan við að fá smit er afar mikil eins og staðan er núna.
Við erum öll almannavarnir. Höldum áfram að vinna að því saman að fækka smitum og komast á betri stað en við erum í dag.Við getum gert þetta saman og samstaða er besta sóttvarnaraðgerðin.

Forsíðumynd frá hrekkjavöku fyrir ári síðan.