Sýningar Hafnarborgar, Far og Þögult vor, sem opnuðu í tilefni Ljósmyndahátíðar Íslands í janúar síðastliðnum, hefur verið framlengt fram á vor í ljósi þess að stjórn HönnunarMars hefur tekið þá ákvörðun að fresta hátíðinni vegna aðstæðna. Þá hefur sýningunni efni:við, sem til stóð að opnaði í lok marsmánaðar sem hluti af dagskrá HönnunarMars, einnig verið frestað þar til í sumar.

Önnur tveggja yfirstandandi sýningar í Hafnarborg sem hefur verið framlengt. Mynd/Hafnarborg

Yfirstandandi sýningar safnsins eiga það sameiginlegt að beina sjónum okkar að umheiminum, þar sem fegurðarinnar er ýmist leitað í náttúrunni eða nánasta umhverfi okkar, hinu daglega lífi. Jafnframt vekja þær okkur til umhugsunar um það hvernig við sjáum heiminn og það sem við skiljum eftir okkur. Að svo stöddu verður opið á sýningarnar eins og venjulega, alla daga nema þriðjudaga kl. 12–17, með fyrirvara um breytingar. Aðgangur er ókeypis.

Í tilkynningu frá Hafnarborg er fólk beðið um vinsamlegast athuga að skipulögðum viðburðum á vegum safnsins, svo sem tónleikum, leiðsögnum og listasmiðjum, verður frestað eða aflýst á meðan samkomubann er í gildi. Einnig er lögð aukin áhersla á sótthreinsun, þar sem sérlega er hugað að helstu snertiflötum, hurðarhúnum, handriðum og slíku. Þá eru gestir hvattir til að gæta hæfilegrar fjarlægðar hver við annan, jafnt í sýningarsölum og afgreiðslu safnsins.

Frekari upplýsingar um breytta sýningardagskrá Hafnarborgar, nákvæmar dagsetningar og fleira, verða birtar þegar nær dregur.

Sjá: https://hafnarborg.is/honnunarmars-frestad-yfirstandandi-syningar-framlengdar/