Tónlistarskóli Hafnarfjarðar (TH) var stofnaður árið 1950 og hóf starfsemi sína með 16 nemendum, sem flestir stunduðu píanónám. Framan af var húsnæði skólans víða í bænum, þar til Hafnarfjarðarbær varð fyrsta sveitarfélagið til að byggja tónlistarskóla frá grunni, við Strandgötu, árið 1997. Húsnæðið er þó þegar við það að springa í dag en tækifærin eru mörg og margt framundan á afmælisárinu. Við ræddum við Eirík Stephensen skólastjóra.  

Frá Degi tónlistarskólans fyrir skömmu. Ungir nemendur TH í Hásölum. Mynd/OBÞ

Eiríkur hóf störf sem skólastjóri TH í október 2018, eftir 21 ár sem skólastjóri Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Eiríkur er einnig annar tveggja dúettsins Hundur í óskilum og annar tveggja höfunda tónlistar í söngleiknum Gosa í Borgarleikhúsinu. Eiríkur segir tímann frá því að hann hóf störf hjá TH hafa farið í að átta sig á skólanum, hvar skóinn kreppi og hvaða möguleika skólinn hafi, en þeir séu mjög miklir. „Mér líður mjög vel hér og mér hefur verið tekið rosalega vel af starfsfólki, foreldrum og stjórnsýslunni. Ég er búinn að fjárfesta í húsnæði í bænum og fjölskyldan flytur hingað í vor. Mér finnst ég kominn í allt öðruvísi starf en fyrir norðan, því skólarnir eru mjög ólíkir.“

Eiríkur, t.v., ásamt Eyvindi Karlssyni, en þeir semja tónlistina í söngleiknum um spýtustrákinn Gosa sem sýndur er í Borgarleikhúsinu. Skjáskot úr myndbandi.
Inga Björk Ingadóttir, músikþerapisti. Mynd/aðsend.

Ungbarnakennsla og nemendur sem sérþarfir

Meðal breytinga sem hafa átt sér stað undanfarna vetur er að seinna árið í forskólanum var breytt úr hefðbundnu blokkflautunámi í að lært er á blásturshljóðfæri í litlum hópum. „Við erum í miklu vinasambandi við Tónlistarskólann í Garðabæ og í vetur réðum við Ingu Björk Ingadóttur músikþerapista í hlutastarf sem ráðgjafa og í kennslu. Okkur langar að geta tekið á móti nemendum með sérþarfir, en skólinn hefur lagt mikinn metnað í slíkt,“ segir Eiríkur. Einnig hafi vetrinum verið varið í breytingu á tónfræðikennslu sem hefjist líklega næsta haust. Um sé að ræða tilraunaverkefni í 2 ár í samstarfi við Listaháskóla Íslands. „Og svo langar okkur líka að vera með ungbarnakennslu fyrir 3-12 mánaða.“

Fagmennska og þolinmæði einkennir kennsluaðferðirnar. Myndir/OBÞ

Húsnæði TH er orðið of lítið fyrir alla starfsemina og segir Eiríkur að verið sé að reyna að auka samstarf við grunnskóla, t.d. með því að bjóða upp á hljóðfærakennslu í skólunum á skólatíma og létta þannig af rýminu í húsnæðinu við Strandgötu. „Ég kem úr þannig kerfi í fyrra starfi. Sums staðar er þetta hægt hér í bæ og það er vilji hjá skólunum með að skoða það. Við erum að fá flotta aðstöðu í Skarðshlíðarskóla, erum líka með ryþmísku deildina í gamla Lækjarskóla og langar að fá hana hingað yfir. Við erum að skoða alla möguleika á hvernig við getum stækkað skólann.“

Tónlistarskóli Hafnarfjarðar er samtengdur Hafnarfjarðarkirkju í gegnum Hásali. Mynd/OBÞ
Hildur Guðnadóttir og móðir hennar, Ingveldur Ólafsdóttir. Mynd í eigu Ingveldar.

Fjölmargir fyrrum nemendur að gera góða hluti
Á afmælisári tónlistarskólans verður hápunkturinn sjálf afmælishátíðin í Íþróttahúsinu við Strandgötu í nóvember, en Eiríkur segir að allir viðburðir á árinu verði meira og minna helgaðir afmælinu. „Við erum að móta þetta smám saman og okkur langar að hafa t.d. lúðrasveitadag, því það gleymdist að halda upp á 60 ára afmæli Lúðrasveitar TH fyrir 2 árum. Lúðrasveit Hafnarfjarðar er líka skipuð meira og minna nemendum og kennurum frá okkur. Svo erum við auðvitað afar stolt af farsæla tónskáldinu Hildi Guðnadóttur. „Foreldrar hennar, Ingveldur Ólafsdóttir og Guðni Franzson, voru samnemendur mínir í tónlist fyrir löngu og ég hitti Hildi síðast þegar hún var eins árs. Ég hef að sjálfsögðu fylgst með henni síðan. Þótt Hildur sé frægust nemenda við skólann í dag er til langur listi til af fyrrum nemendum hér sem eru að gera góða hluti. Skólinn er líka þekktur fyrir frábæran kennarahóp og hér ríkir mikil starfsánægja,“ segir Eiríkur að lokum.  

Þessi umfjöllun er samstarf.