Þjóðhátíðardegi verður fagnað með óvenjulegum og öðruvísi hætti í Hafnarfirði í ár í ljósi þeirra takmarkana sem í gangi hafa verið síðustu vikur og mánuði. Ekki verður blásið til sameiginlegrar hátíðar eins og venjan er heldur íbúar hvattir til að halda sínar eigin heimahátíðir. Sveitarfélagið leggur þó sitthvað af mörkum til hátíðarhaldanna og mun bjóða upp á óvæntar en ótímasettar uppákomur víða um bæinn.
Þannig eru íbúar hvattir til að grilla í garðinum heima og skemmta sér innanbæjar. Fastir liðir eins og fánahylling og heimsóknir á heimili og sjúkrastofnanir með flutning á íslenskum dægurperlur munu halda sér auk þess sem söguskilti við Fríkirkjuna á Austurgötu verður opnað.
Íbúar eru einnig sjálfir hvattir til að skjóta upp fána, flagga eða setja fána í næsta glugga eða blómapott. Heppnir íbúar munu einnig upplifa óvæntar uppákomur víða um bæinn þar sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar, Listahópur Vinnuskólans, álfar og ævintýrapersónur munu troða upp og skemmta þeim sem á vegi þeirra verða.
Opið verður á söfnum og í sundlaugum sveitarfélagsins og er sem fyrr frítt inn á öll söfn og frítt í sund fyrir 17. ára og yngri. Ísbíllinn verður á ferð um hverfin og muni ís verði í boði fyrir börnin.
Heilsueflandi hugmyndir að skemmtun á heimavelli:
Hlustum á hljóðið
Hækkum í tónlistinni, syngjum og dönsum
Óvæntar uppákomur víða um bæinn
Förum í sund eða á safn
Buslum í Hvaleyrarvatni
Göngum á slóðir Ratleiks Hafnarfjarðar
Dorgum við höfnina
Hoppum á ærslableg á Óla Run túni
Leikum á Víðistaðatúni
Förum í lautarferð í Hellisgerði
Mynd/olimar.is