Guðmundur Fylkisson lögreglumaður, mannvinur, fuglavinur og Hafnfirðingur ársins 2018, hlaut í dag Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2020 fyrir störf í þágu barna og ungmenna sem eru í vanda og þá nálgun sem hann hefur í samskiptum sínum við þau. Afhending viðurkenningarinnar fór fram í veislusal veitingastaðarins Nauthóls og það var forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sem afhenti hana.
Í frétt á vefsíðu Barnaheilla segir að Guðmundur leggi sig fram við að nálgast ungmenni af virðingu og nærgætni til að auka ekki á vanlíðan þeirra og skaða. Þrátt fyrir að hann starfi fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu aðstoði hann við leit að börnum alls staðar af landinu. Einnig leggi hann sig fram við að varast staðalímyndir því börnin sem hann leiti að séu á ýmsum aldri og með mismunandi bakgrunn og bakland þeirra missterkt.
Barnaheill veita árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í dag, 20. nóvember.
Harpa Rut Hilmarsdóttir, formaður Barnaheilla, flutti ávarp og tilkynnti svo hver hlaut viðurkenninguna.
Mynd/Barnaheill