Hamarinn ungmennahús hlaut á dögunum Grænfánavottun Landverndar og varð þannig fyrsta ungmennahús landsins til að hljóta slíkan gæðastimpil. Haustið 2019 sótti umhverfisnefnd Hamarsins um að gerast Grænfána ungmennahús hjá Landvernd.

Á sama tíma setti ungmennahúsið sér metnaðarfull markmið og hefur staðið fyrir fjölda viðburða og funda sem snúa m.a. að umhverfismálum enda yfirlýst markmið Hamarsins að vera leiðandi ungmennahús á landsvísu í þessum málaflokki, sem öðrum. Aðalfundur húsfélags hússins var haldinn 21. desember og var á fundinum kosin ný og öflug stjórn í húsfélagið.

Nýja stjórn húsfélags Hamarsins skipa:

·         Melkorka Assa Arnardóttir

·         Bjarki Freyr Ólafsson

·         Nicolas Leó Sigurþórsson

·         Ásbjörn Ingi Ingvarson

·         Tristan Flóki Arnarson

·         Vera Mist Magnúsdóttir

·         Björk Davíðsdóttir

·         Marín Helgadóttir

·         Thorvald Michael Vágseið

·         Valtýr Melsted

Ungmennin sjálf eru drifkrafturinn í starfinu

Hamarinn er ungmennahús fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára í gömlu Skattstofunni að Suðurgötu 14 og starfar eftir gildum jafnréttis, vináttu og vellíðunar auk þess sem virðing fyrir náttúru og umhverfi er undirliggjandi þáttur í allri starfseminni. Innri starfsemi byggir á þeim forsendum að ungmennin sjálf séu drifkraftur í starfinu og þannig endurspeglar starfsemi og verkefni hússins tíðaranda og áhuga ungmennanna sjálfra. Umhverfisnefnd Hamarsins bjó þannig til umhverfissáttmála sem felur í sér þau mikilvægu skilaboð að skilja við jörðina eins eða jafnvel betri en komið er að henni. Þannig sé náttúran virt með nýtni og hófsemi, umhirðu og endurvinnslu að leiðarljósi. Ný umhverfisnefnd mun vera kosin í upphafi á nýju ári og fær hún m.a. það hlutverk að byggja ofan á þann góða grunn sem lagður hefur verið og gera enn betur í umhverfismálum.

Markmið sem liggja að baki fyrstu Grænfánavottun:

·         Koma urðunartunnu í gagnið

·         Verða plastlaus

·         Huga að orkuneyslu og vera með endurnýjanlega orkugjafa

·         Auglýsa markmið út á við og fá fleiri til að taka þátt


Það er mat Landverndar að Hamarinn sé að standa sig vel og hafi gert sitt til að uppfylla ofangreind markmið þrátt fyrir erfiðar aðstæður á tímum Covid19. Umhverfisnefnd Hamarsins stóð m.a. fyrir fatamarkaði og fræðslukvöldum um umhverfismál og verða slíkir viðburðir haldnir árlega. 

Mynd frá afhendingu Grænfánavottunar aðsend.