Undanfarin fjórtán ár hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með framlögum fyrir jólin. Ásta Eyjólfsdóttir formaður nefndarinnar kom í Áslandsskóla í gær og tók við framlagi úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra, alls 370 þúsund krónur.

Nemendur í 5. bekk skólans voru viðstaddir og fengu m.a. fræðslu um hvað verður um þá fjármuni sem safnast. Á fjórtán árum hefur skólasamfélagið í Áslandi því styrkt Mæðrastyrksnefnd um alls 3.499.532.- krónur. „Þessi hugsun okkar til þeirra sem minna mega sín tengist einni af fjórum hornstoðum skólans, þjónustu við samfélagið. Gaman er að sjá að fleiri skólar í Hafnarfirði hafa fylgt fordæmi okkar og styrkja nú Mæðrastyrksnefnd í stað pakkaleikja,“ segir Leifur í tilkynningu.