Hafnarfjarðarbær, fyrir hönd Heimilin íbúðafélag hses., og HBH Byggir ehf. skrifuðu fyrir helgi undir verksamning um uppbyggingu á búsetukjarna fyrir fatlað fólk að Öldugötu 45. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist strax í sumar og að íbúðirnar afhendist í febrúar 2021.
 
HBH Byggir ehf. átti lægsta tilboð í byggingu íbúðakjarna við Öldugötu 45 í Hafnarfirði en á sama tíma fékk tillagan bestu umsögn matsnefndar. „Við höldum áfram að fjölga heimilum fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði eins og óskir okkar og áætlanir gera ráð fyrir. Í lok árs 2018 skrifuðum við undir samning við Framkvæmdafélagið Arnarhvol ehf. um uppbyggingu á búsetukjarna að Arnarhrauni 50 þannig að við erum að vinna að því hörðum höndum að fjölga sérhönnuðum heimilum fyrir fatlað fólk sem getur og vill búa í eigin húsnæði. Það er afar ánægjulegt að sjá þessar framkvæmdir verða að veruleika og hlakka ég til að sjá íbúana flytja inn í ný híbýli,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar við undirritun á samningi við HBH Byggir ehf.

Um alútboð er að ræða og hljóðar verksamningur upp á rúmar 152,6 milljónir króna. HBH Byggir ehf. mun hanna, byggja og fullgera húsnæðið ásamt lóð og skila því fullbúnu til notkunar. Arkitekt er Sturla Þór Jónsson og Orbicon sér um verkfræðihönnun. Um er að ræða sex sérbýli sem hvert um sig er um 50 m2 að stærð ásamt 23 m2 starfsmannaaðstöðu og um 20 m2 sameiginlegum rýmum. Stærð lóðar er 1.904,3 m2. Öll sérbýlin eru hönnuð samkvæmt hugmyndafræði algildrar hönnunar en í því felst að hanna góðar lausnir með jafnrétti og vellíðar alls fólks í fyrirrúmi.

Mynd: Hér má sjá Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar og Dagmar Þorsteinsdóttur framkvæmdastjóri HBH Byggir ehf. við undirritun verksamnings. Fyrir aftan stendur hópurinn sem hefur komið að verkefninu f.h. Hafnarfjarðarbæjar, HBH Byggir ehf og VSB verkfræðistofu.