Opnuð hefur verið hressandi gönguleið, brandaraganga, um skemmtilegar slóðir í Suðurbæ Hafnarfjarðar í smáforritinu Wapp – Walking App. Á leiðinni eru 27 áningarstaðir með bröndurum og alls eru brandararnir 37 talsins. Brandaragangan er í boði Heilsubæjarins Hafnarfjörður líkt og fleiri göngur í smáforritinu, m.a. núvitundarganga við Hvaleyrarvatn. Gangan er við allra hæfi og brandararnir sem eru á 100–200 m fresti til þess fallnir að hvetja yngsta göngufólkið áfram.

Gangan hefst við Fjörð. Farið er meðfram sjávarsíðunni, eftir Strandstígnum, þar sem sólarlagið nýtur sín á fallegum kvöldum, kyrrðin kristallast að morgni og lífið endurspeglast í allri sinni dýrð yfir daginn. Þaðan er gengið upp í áttina að St. Jósefsspítala og framhjá Karmelklaustrinu þar sem er tilvalið að ganga upp á útsýnishólinn og skima í allar áttir. Farið er að kirkjugarðinum og gengið meðfram honum niður að Hamarskotslæk. Læknum er fylgt niður í miðbæinn aftur m.a. framhjá gömlu stíflunni og virkjuninni þar sem heilsa má upp á endur, gæsir og álftir.

Einar Skúlason hjá Wappinu skellir upp úr. Hann hefur húmor fyrir Hafnarfjarðarbröndurunum.

Sæktu gönguna í símann og arkaðu af stað

Wapp er ókeypis smáforrit með safni fjölbreyttra GPS leiðarlýsinga fyrir snjallsíma um allt Ísland með upplýsingum um örnefni, sögur, náttúru og umhverfi. Leiðarlýsingu göngunnar er hægt að hlaða inn á símann fyrirfram eða hlaða gagnasambandi við upphaf göngu. Gangan ber heitið Hafnarfjarðarbrandaragangan í smáforritinu og þegar gönguleiðin hefur verið opnuð er smellt á “kort”. Þá birtast þeir staðir þar sem tilvalið þykir að segja nýjan brandara, hver punktur geymir svo einn til tvo vel valda.

Flestar Wapp leiðirnar í Hafnarfirði eru í boði Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Vonir standa til þess að samstarf Heilsubæjarins og Wapp auðveldi íbúum og vinum Hafnarfjarðar að nálgast upplýsingar um áhugaverðar gönguleiðir, sögulegan fróðleik um menningarminjar og útivistarmöguleika í landi Hafnarfjarðar og hvetji til aukinnar hreyfingar og útiveru.

Hreyfum okkur og hlæjum smá í leiðinni!

Aðalmynd – Geir Bjarnason verkefnastjóri Heilsubæjarins Hafnarfjarðar og Einar Skúlason eigandi Wappsins að prufukeyra gönguna í fyrsta skipti í dymbilvikunni.