Bókasafn Hafnarfjarðar verður opið sem fyrr á meðan á samkomubanni stendur. Starfið verður örlítið öðruvísi, þ.e.a.s. engir viðburðir eða klúbbar verða í boði og ekki verður boðið upp á hið vanalega morgunkaffi.

Afgreiðsla verður aðlöguð að tveggja metra reglunni og allt starfsfólk mun sinna reglulegri sótthreinsun og þrifum, auk þess sem að safnkostur verður reglulega sótthreinsaður og eins tekinn í gegn fyrir hvert útlán og hverja skilun. 

Áfram verður hægt að setjast niður með góða bók í notalegum rýmum bókasafnsins, en passa tveggja metra regluna. Mynd/OBÞ