Badmintonfélag Hafnarfjarðar var í eldlínunni um helgina þegar Meistaramót Íslands var haldið á heimavelli félagsins í íþróttahúsinu við Strandgötu. Hafnfirskt badmintonfólk fór ekki tómhent heim en alls unnu BH-ingar átta Íslandsmeistaratitla.

Erla Björg Hafsteinsdóttir (t.v.) og Drífa Harðardóttir. Mynd:Kjartan Einarsson/BH

Einna hæst ber Íslandsmeistaratitill í tvíliðaleik kvenna í meistaraflokki þar sem Erla Björg Hafsteinsdóttir sigraði ásamt Skagakonunni Drífu Harðardóttur.

Gabríel Ingi Helgason heldur áfram að gera frábæra hluti og varð þrefaldur Íslandsmeistari í B-flokki. Mikið efni og verður spennandi að fylgjast með hans framþróun næstu árin.

Gabríel Ingi Helgason. Mynd: Kjartan Einarsson/BH

Mikið kapp var lagt í að gera umgjörðina eins glæsilega og hægt var fyrir besta badmintonfólk landsins. Spilað var á nýjum keppnismottum sem Hafnarfjarðarbær gaf félaginu og nýir dómarastólar voru teknir í notkun á mótinu sem félagsmenn í BH og velunnararar söfnuðu fyrir og þeir Sebastían og Ingvar smíðuðu fyrir félagið.

Glæsileg umgjörð hjá BH. Mynd:Kjartan Einarsson/BH

Róbert Ingi Huldarsson sem spilar fyrir hönd BH í meistaraflokki hannaði hugbúnað til að sýna nöfn leikmanna og stöðu í leikjum á skjá á öllum völlum og það kom sérstaklega vel út. Tugir félagsmanna í BH komu að því að setja upp keppnismottur, aðstoða við tæknimál, dæma og telja leiki, undirbúa, þjálfa, ganga frá að móti loknu og aðstoða á ýmsan annan hátt. Frábær liðsheild sem skilaði af sér vel framkvæmdu móti.

Verðlaunahafar BH á mótinu voru:

Erla Björg Hafsteinsdóttir, 1.sæti í tvíliðaleik kvenna í meistaraflokki

Irena Ásdís Óskarsdóttir, 1.sæti í tvíliðaleik kvenna í A-flokki og 2.sæti í tvenndarleik í B-flokki

Anna Lilja Sigurðardóttir, 1.sæti í tvíliðaleik kvenna í A-flokki

Valgeir Magnússon, 2.sæti í tvíliðaleik í A-flokki

Orri Örn Árnason, 2.sæti í tvíliðaleik í A-flokki

Gabríel Ingi Helgason, 1.sæti í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í B-flokki

Kristian Óskar Sveinbjörnsson, 1.sæti í tvíliðaleik og 2.sæti í einliða- og tvenndarleik í B-flokki

Anna Ósk Óskarsdóttir, 1.sæti í tvenndarleik í B-flokki

Rakel Rut Kristjánsdóttir, 2.sæti í einliðaleik í B-flokki

Natalía Ósk Óðinsdóttir, 2.sæti í tvíliðaleik í B-flokki

Karítas Perla Elídóttir, 2.sæti í tvíliðaleik í B-flokki

Hafnfirskir verðlaunahafar í A og B-flokki. Mynd:Kjartan Einarsson/BH

BH fagnar 60 ára afmæli á þessu ári og buðu mótshaldarar upp á kaffi og kökur í tilefni afmælisins. Glæsilega að öllu staði BH og til hamingju með árangurinn.