Hvatningaverðlaun foreldraráðs Hafnarfjarðar fyrir árið 2020 voru afhent á 12 stöðum í morgun. Verðlaunin hlutu kennarar og starfsfólk grunnskóla Hafnarfjarðar, auk þess sem mennta- og lýðheilsusvið bæjarins fékk einnig verðlaun fyrir frábær störf í heimsfaraldri. Vegna samkomutakmarkana var afhendingin með örlítið breyttu sniði.

Grunnskólarnir í Hafnarfirði eru Barnaskóli Hjallastefnunar, Víðistaðaskóli, Engidalsskóli, NÚ, Lækjarskóli, Setbergsskóli, Öldutúnsskóli, Áslandsskóli, Hraunvallaskóli, Skarðshlíðarskóli, Hvaleyraskóli. Það vori Stefán Már Gunnlaugsson, Vala Steinsdóttir og Kristín Ólöf Grétarsdóttir, fulltrúar foreldraráðs sem afhentu verðlaunin. Mikil gleði ríkti á kaffistofum skólanna og þakklæti fyrir kökurnar, verðlaunin og innlitið.

Vanalega eru þessi verðlaun veitt á þessum tíma fyrir sama ár og er, en vegna Covid19 voru verðlaunin fyrir árið 2020 veitt núna og svo verða Hvatningaverðlaunin fyrir 2021 veitt í apríl næstkomandi.

Olga Björt Þórðardóttir slóst með í för í nokkra af skólunum og smellti af nokkrum myndum. Aðrar eru aðsendar.

Allir skólarnir fengu svona skjöld til eigu.
Hraunvallaskóli.
Öldutúnsskóli.
Skarðshlíðarskóli.
Áslandsskóli.
Setbergsskóli.
Mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðarbæjar.
Hvaleyrarskóli.
Kristín Ólöf Grétarsdóttir, Vala Steinsdóttir og Stefán Már Gunnlaugsson í Skarðshlíðarskóla.
Barnaskóli Hjallastefnunnar.
Engidalsskóli.
NÚ framsýn menntun.
Lækjarskóli.
Víðistaðaskóli.