Yfirlýsing frá Hestamannafélaginu Sörla vegna forgangsröðunar á byggingu íþróttamannvirkja í Hafnarfirði:

Loforð um að virða forgangsröðun ÍBH

Fulltrúar Hafnafjarðarbæjar, þ.m.t. bæjarstjóri og aðrir kjörnir stjórnendur meirihlutans hafa ítrekað sagt, bæði í ræðu og riti, að ekkert annað komi til greina af hálfu bæjarins en að virða þá forgangsröðun um byggingu íþróttamannvirkja sem samþykkt hefur verið af Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar, ÍBH.

Samkvæmt þeirri forgangsröðun er bygging reiðhallar á félagssvæði Sörla næst á dagskrá. Sörli hefur nú beðið í yfir 10 ár eftir að byggingin kæmist á dagskrá á þeim tíma hefur ÍBH ályktað að byggingin væri forgangsverkefni. Félagið er búið að vinna faglega í gegnum árin, hefur farið í gríðarlega undirbúningsvinnu, kostað rannsóknir og látið forhanna bygginguna, allt í sjálfboðavinnu. Loksins var komið að Sörla, eða hvað!

Svör bæjarstjórnarmanna og nýlega undirritaður samningur um byggingu knatthúss á Ásvöllum vekja upp spurningu um að til standi að svíkja gefin loforð.

Byggja á reiðhöll á undan knatthúsi á Ásvöllum:

Ef bæjaryfirvöld ráðast í byggingu knatthúss á Ásvöllum á undan byggingu reiðhallar fyrir Sörla eru það ekkert annað en svik við gefin loforð. Hversu marga milljarða á að setja í fótboltahús í Hafnarfirði meðan aðrar íþróttir fá ekkert. Í Hafnarfirði eru tugir minni íþróttafélaga sem alltaf verða undir í baráttunni. Munu litlu íþróttafélögin innan ÍBH sætta sig við þetta. Fótboltahús á Ásvöllum mun sennilega soga til sín allt framkvæmdafé íþróttamannvirkja næstu 4-5 árin.

Traðkað á eigin stjórnsýslu:

Það sem meira er þá eru bæjaryfirvöld að traðka á eigin stjórnsýslu í íþróttamálum, stjórnsýslu sem þau sjálf komu upp til að koma í veg fyrir ómálefnaleg sjónarmið við byggingu íþróttamannvirkja.

Vilja stjórnendur bæjarins ekki standa við loforðin, virða lýðræðislega og faglega vinnu sem unnin er innan ÍBH.

Ef byrjað er á byggingu knatthúss á Ásvöllum á undan byggingu reiðhallar fyrir hestamannafélagið Sörla, eru það ekkert annað en svik. Þá hafa þeir hinir sömu kjörnu fulltrúar svikið sín loforð og svikið sína eigin íþróttahreyfingu. Og af hverju, hvaða sjónarmið ráða þar för.

Ef loforð stjórnmálamanna virðast léttvæg, hvað þá með að vera fólk orða sinna, heiðarleg fólk, skiptir það kannski ekki máli.

Stjórn Hestamannafélagsins Sörla