45 fjallahjólakrakkar og ungmenni kepptu á Ungdúrómóti Brettafélags Hafnarfjarðar 14. júní sl. Keppt var í Heiðmörki með leyfi Garðabæjar og Skógræktarfélags Reykjavíkur. Var þetta annað árið í röð sem Brettafélag Hafnarfjarðar heldur slíka keppni, en í fyrra var hún haldin á Hvaleyrarvatnssvæðinu í landi Hafnarfjarðar.

Ungdúró tekur nafn sitt af Enduro keppnisformi fjallahjólreiða þar sem þátttakendur hjóla saman lengri leið og aðeins er keppt á stuttum köflum inn á milli sem aðallega liggja niður á við. Það er svo heildartíminn á þessum keppnisbútum sem gildir, sá sem er með lægsta samanlagða tímann vinnur. Slíkar keppnir hafa verið haldnar fyrir fullorðna síðan 2014 en í fyrra var fyrsta skiptið sem þess konar keppni var skipulögð fyrir krakka og unglinga undir 18 ára aldri.

Mótið tókst að sögn mótshaldara gríðarlega vel og voru það glaðir krakkar og unglingar sem hjóluðu um í Heiðmörk þennan sunnudag. Brettafélag Hafnarfjarðar vill koma á framfæri þakklæti til allra sem lögðu hönd á plóg, þ.á.m. sjálfboðaliðum, Garðabæ, Skógræktarfélagi Reykjavíkur, Tímatöku.net og ljósmyndaranum Snorra Þór Tryggvasyni en hann náði frábærum myndum af öllum krökkunum á hjólinu í keppnisgír.


Keppt var í nokkrum flokkum og er hægt að sjá niðurstöður mótsins á www.timataka.net
Meðfylgjandi eru tvær aðsendar myndir frá mótinu. Önnur þeirra er af sigurvegurum í U11 flokki stúlkna og hin er hópmynd af keppendum.
Einstaklingsmyndir af mótinu tók Snorri Þór Tryggvason ljósmyndari sem má nota að vild má finna hér.