Bæjarvefsjáin Granni er byggð á upplýsingaslóð sem hefur verið til síðan um aldamótin 2000, en er nú komin í nýjan og notendavænni búning. Ný og betrumbætt bæjarvefsjá er liður í aukinni áherslu á stafræna þjónustu og miðlun fyrir íbúa bæjarins og aðra hagsmunaaðila, í samstarfi við EFLU verkfræðistofu. Hafnfirðingur hitti Helgu Stefánsdóttur, forstöðumann á umhverfis- og skipulagssviði og Elsu Guðmundu Jónsdóttur, landfræðing en þær horfa á bæinn með öðrum gleraugum en flestir.

Árið 2001 var byrjað skanna húsateikningar og safna upplýsingum sem eru grunnurinn að bæjarvefsjánni í dag. Helga hefur starfað hjá Hafnarfjarðarbæ lengi sem og Elsa. Þær vilja vekja athygli bæjarbúa og vina Hafnarfjarðar á hvað Granni hefur upp á að bjóða og hvetja fólk til að prófa sig áfram. „Húsa- og lóðateikningar eru langmest sóttar í grunninn í dag. Fólk er forvitið um slík mál. Þessi þjónusta hefur létt heilmikið á starfsfólki bæjarins sem lengi vel afhenti slík gögn beint,“ segir Elsa. Einnig sé hægt að nálgast gögn um deiliskipulag hverfa, hverfamörk, skólahverfi og minja- og verndarsvæði, staðsetningu skóla, stofnana, leikvalla, stíga, sundlauga og grenndargáma, skipulag vatnsveitu, hita- og fráveitu ásamt lagnaleiðum.


Notendur velja um loftmynd eða kort
„Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir hversu mikið magn upplýsinga og lifandi gagna er að finna þarna og það með beinni tengingu við t.d. Skipulagsstofnun og Samgöngustofu. Hægt er að sjá m.a. hvar slys hafa átt sér stað í bænum og hversu alvarleg,“ segir Helga og Elsa bætir við að notendur geti valið um loftmynd eða kort, hvað sem hentar betur hverjum og einum. „Möguleikar í innsetningu á efni og upplýsingum í Granna eru mjög miklir og við eigum að vera með nýjustu og réttustu upplýsingarnar hverju sinni. T.d. er nýlega búið að bæta við hvar áningarbekkir eru, ruslatunnur og tjaldstæði, forgangsröðun í snjómokstri og síðan bætist við m.a. forgangsröðun í garðslætti með vorinu.“ Helga bendir á til viðbótar að auðvelt sé að nálgast heimasíður íþróttafélaga, skóla, leikskóla og stofnana í bænum þegar hver og einn staður sé skoðaður.

„Ég gerði niðurfallakort í fyrra og sá ekkert nema niðurföll og í haust gerði ég brunahanakort og sá þá bara brunahana,“ segir Elsa. Blaðamaður spyr þá hvað séu margir brunahanar í bænum og Elsa svarar um hæl: „443!“ Þær skella báðar upp úr. Helga bætir við: „Við tökum eftir brotnum köntum, holum, skökkum ljósastaurum og því sem betur má fara. Það er okkar hlutverk og að vera sífellt reiðubúin að bæta og laga það sem betur má fara. Skemmtilegasta við vinnu við Granna er hvað vinnan er lifandi og í raun aldrei búin.“

Bæjarvefsjáin Granni er í sífelldri uppfærslu, endurskoðun og þróun með það fyrir augum að dýpka þessa upplýsingagátt enn frekar og opna á enn betri aðgang að mikilvægum og áhugaverðum upplýsingum á einum og sama staðnum.
Mynd/OBÞ
Skjáskot af bæjarvefsjánni Granna