Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í gær að skapa 250 ný sumarstörf og fjölga þeim störfum sem í boði eru fyrir hafnfirskt námsfólk og frumkvöðla nú í sumar. Reisulegt húsnæði Menntasetursins við Lækinn í Hafnarfirði verður þannig gert að nýsköpunarstofu og mun hópurinn fá þar aðstöðu til nýsköpunar og rannsókna auk þess að hafa greiðan aðgang að sérfræðingum sveitarfélagsins. Ákvörðunin er liður í framkvæmd á Covid19 aðgerðaáætlun sveitarfélagsins.
Covid19 aðgerðaáætlun Hafnarfjarðarbæjar tekur m.a. til nýsköpunar ungs fólks og frumkvöðla. Þegar aðgerðaáætlun var samþykkt þann 1. apríl sl. var sviðum bæjarins falið að taka saman lista yfir ný og afmörkuð verkefni þar sem nýta megi menntun og færni þátttakenda til nýjunga og umbóta í starfsemi bæjarins. Nær þetta m.a. til starfsemi og verkefna á sviði umhverfis- og framkvæmdamála, upplýsingatækni, fræðslumála, fjölskyldumála, menningarmála, íþróttamála og heilsueflandi samfélags sem sótt hefur verið um fyrir í Nýsköpunarsjóð námsmanna. Í heild bárust 80 verkefnatillögur frá sviðunum sem samsvara u.þ.b. 230 störfum.
„Það verður frábært að sjá Menntasetrið við Lækinn fyllast af lífi og sköpun nú í sumar en í þeim aðstæðum sem við sem samfélag erum nú í geta svo sannarlega falist ný tækifæri. Skapandi hugsun og frjóar hugmyndir verða einmitt oft til þegar kreppir að. Við ætlum að nýta okkur hugmyndaauðgi fólks til að fá ferskar og góðar hugmyndir inn í starfsemi sveitarfélagsins. Verkefni bæjarins eru mörg og fjölþætt og eru mikil verðmæti fólgin í því að fjárfesta í nýsköpun og skapandi greinum og tryggja um leið unga fólkinu okkar sumarstörf,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Tillögurnar snúast flestar um krefjandi og metnaðarfull rannsóknarverkefni sem auglýst verður eftir háskólanemum til þess að vinna að í sumar en einnig ýmis átaksstörf sem tengjast t.d. aukinni stafrænni þjónustu og framkvæmdum í bæjarlandi auk skapandi sumarstarfa til þess að glæða bæinn lífi í sumar.
Sumarstörf í Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Nú þegar hefur mikil aukning orðið í umsóknum í Vinnuskóla Hafnarfjarðar og það hjá öllum aldurshópum. Allir þeir sem eru á aldrinum 14-17 ára fá vinnu og sýna nýjustu tölur mikla aukningu í hópi 17 ára umsækjenda eða a.m.k. tvöföldun. Biðlisti er þegar kominn í störf 18 ára og eldri og mun ákvörðun bæjarráðs frá því í dag m.a. taka til þeirra starfa.
Myndatexti: Menntasetrið við Lækinn í Hafnarfirði verður nýsköpunarstofa fyrir hafnfirskt námsfólk og frumkvöðla nú í sumar.
Einnig hægt að nálgast fréttatilkynningu í fylgiskjali.